Blue Car býður eldri borgurum í flotta dagsferð
Blue Car Rental býður eldri borgurum í FEBS í skemmtilega dagsferð 3. júní nk. Kristján Gunnarsson, formaður félagsins segir að þetta sé glæsilegt boð hjá Blue Car og von sé á góðri þátttöku eldri borgara í ferðina.
Farið verður í rútu frá Keflavík að morgni 3. júní og ferðinni heitið á Suðurland en Blue Car mun bjóða félögum í FEBS í Laugarás Lagoon en Blue er einn af eigendum þess. Lónið opnaði á síðasta ári og er í fallegu umhverfi við bakka Hvítár.
Kristján sagði að hópurinn myndi snæða á leiðinni á Selfossi en hvatti félaga í FEBS að skrá sig í þessa flottu ferð sem er þeim að kostnaðarlausu.








