Dylan-hátíð í Keflavík
Í tilefni af 85 ára afmæli Bob Dylan verður fjórða Dylan-hátíðin haldin suður með sjó, nánar tiltekið í Keflavík, dagana 23.–24. maí 2026. Hátíðin sameinar fræðslu, tónleika og messu þar sem líf, ljóð og tónlist Dylans fá að hljóma í nýju samhengi. Fyrir hátíðinni stendur áhugafólk um Bob Dylan og í tilefni af 85 ára stórafmæli hans þann 24. maí er aðgangur ókeypis. Öll velkomin meðan húsrúm leyfir.
Dagskrá
Laugardagur 23. maí
15:00–16:30
Ég rúma heila mergð - Afmælisbarnið Bob Dylan í tali og tónum
Safnaðarheimili Keflavíkurkirkju
20:00–23:30
Hér handan er ekkert - Dylan heiðurstónleikar
The Dubliner kráin
Sunnudagur 24. maí
11:00–12:00
Þrír englar - Dylanmessa
Keflavíkurkirkja
Fram koma á hátíðinni:
Henning Emil Magnússon, Projekt, Blind Willie, Ólafur Páll Gunnarsson, Slow train, Þrír englar og þreyttir hestar, Sverrisson Hotel.
Um Bob Dylan og tónlist hans
Bob Dylan er einn áhrifamesti tónlistarmaður samtímans og hefur á ferli sínum mótað tónlist og ljóðlist víða um heim. Hann hefur verið kallaður meistari ljóðsins og einn helsti áhrifavaldur í tónlist 20. aldar.
Hann hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2016 fyrir að hafa skapað nýja ljóðræna tjáningu innan tónlistarhefðar og hefur auk þess hlotið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga. Tónlistarferill hans spannar hartnær 70 ár, hundruðir laga og ótal tónleika um allan heim — og hann heldur enn áfram að koma fram og endurskapa tónlist sína.
Tónlist hans hefur haft djúpstæð áhrif beggja vegna Atlantshafsins og um heim allan og heldur áfram að lifa og breytast — líkt og hún gerir á þessari hátíð. Dylan hefur á ferli sínum haldið tvenna tónleika á Íslandi og tónlist hans hefur lengi átt sér dyggan hóp áheyrenda hér á landi.
Dylan er einn áhrifamesti tónlistarmaður samtímans og hefur á ferli sínum mótað tónlist og ljóðlist víða um heim. Hann hefur verið kallaður meistari ljóðsins og einn helsti áhrifavaldur í tónlist 20. aldar.
Hann hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2016 fyrir að hafa skapað nýja ljóðræna tjáningu innan tónlistarhefðar og hefur auk þess hlotið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga. Tónlistarferill hans spannar hartnær 70 ár, hundruðir laga og ótal tónleika um allan heim — og hann heldur enn áfram að koma fram og endurskapa tónlist sína.
Tónlist hans hefur haft djúpstæð áhrif beggja vegna Atlantshafsins og um heim allan og heldur áfram að lifa og breytast — líkt og hún gerir á þessari hátíð. Dylan hefur á ferli sínum haldið tvenna tónleika á Íslandi og tónlist hans hefur lengi átt sér dyggan hóp áheyrenda hér á landi.
https://facebook.com/events/s/her-handan-er-ekkert/1326592872663170/







