Fjölmenntu á vettvang reykjarlyktar
Talsverður viðbúnaður var í kvöld þegar tilkynnt var um reykjarlykt á asískum veitingastað við Hafnargötu 90 í Keflavík. Fjölmennt lið viðbragðsaðila frá Brunavörnum Suðurnesja og lögreglunni á Suðurnesjum var fljótt á vettvang.
Enginn eldur var sjáanlegur en fljótlega kom í ljós að eldur hafði komist í pappír sem orsakaði brunalyktina. Ekki þótti ástæða til frekari aðgerða á vettvangi.







