Tónlistarskóli Reykjanesbæjar nám
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar nám

Fréttir

Fluttur til Noregs með alvarleg brunasár
Miðvikudagur 20. maí 2026 kl. 22:21

Fluttur til Noregs með alvarleg brunasár

Íslenskur maður á fimmtugsaldri var fluttur með sjúkraflugi til Noregs í gær, þar sem hann gengst undir aðgerðir vegna brunasára á um 50% líkamans. Atvikið átti sér stað í kirkjugarðinum í Keflavík þegar Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af manninum í fyrradag og beitti rafvarnarvopni eftir að maðurinn hafði hellt yfir sig íkveikjuvökva. Það er visir.is sem greinir frá.

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður mannsins, hefur sent erindi til héraðssaksóknara og krafist sakamálarannsóknar á hendur lögreglunni. Hann telur að lögreglan hafi brotið almenn hegningarlög og lögreglulög.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar