Fréttir

Jarðeðlisfræðingur varar við fordæmalausu landrisi
Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur og prófessor emeritus. Mynd: Háskóli Íslands
Þriðjudagur 19. maí 2026 kl. 13:25

Jarðeðlisfræðingur varar við fordæmalausu landrisi

Allt stefnir í nýtt eldgos á Sundhnúksgígaröðinni á Reykjanesskaga, en landris á svæðinu er nú komið langt umfram það sem áður hefur mælst hæst. Í frétt á SÝN í gærkvöldi kom fram að þótt líklegasta sviðsmyndin sé nýtt gos á sömu slóðum, séu aðrar og mun alvarlegri sviðsmyndir einnig í stöðunni – þar á meðal að nýtt eldstöðvakerfi taki við.

Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur og prófessor emeritus, bendir á að bullandi landris sé í gangi og erfitt sé að komast að annarri niðurstöðu en þeirri að stutt sé í nýja atburði. Liðnir eru rúmir níu mánuðir frá því að síðasta gosi á svæðinu lauk, en það stóð yfir frá 16. júlí til 5. ágúst í fyrrasumar. Veðurstofa Íslands segir sömuleiðis að kvikuhlaup og nýtt eldgos séu líklegasta framhaldið.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Krýsuvíkurkerfið gæti tekið við

Þrátt fyrir að spár geri ráð fyrir gosi við Sundhnúksgígaröðina, segir Páll vel hugsanlegt að virknin í Svartsengi lognist út af hægt og rólega og annað eldstöðvakerfi taki við. Nefnir hann þar sérstaklega Reykjanestána, Brennisteinsfjöll og Krýsuvíkurkerfið.

Að sögn Páls er Krýsuvíkurkerfið það kerfi sem býður upp á langalvarlegustu sviðsmyndina og stærstu tjónaatburðina. Ástæðan er sú að hluti af því kerfi teygir sig inn í úthverfi Reykjavíkur. Það tjón yrði mun stærra en það sem þegar hefur orðið í Grindavík.

Mesta tjónið verður í kvikuhlaupum án eldgosa

Frá því að yfirstandandi umbrotahrina hófst árið 2020 hafa þrjú eldstöðvakerfi þegar virkjast: Svartsengi, Fagradalsfjall og Krýsuvík.

Páll minnir á að reynslan sýni að mesta mannvirkjatjónið verði ekki endilega í sjálfum eldgosunum, heldur þegar sprungur opnast í stórum kvikuhlaupum sem ná ekki til yfirborðs. Sýndi það sig bersýnilega í nóvember 2023 þegar gríðarlegar skemmdir urðu á innviðum og húsum í Grindavík í kjölfar stóra kvikuhlaupsins þann 10. nóvember.

Ný bylgjuvíxlmynd af brunni Veðurstofu Íslands sem túlkar landris yfir mánaðartímabil á Reykjanesskaganum. 

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar