Mánudagur 18. maí 2026 kl. 09:40

Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn hafið viðræður í Reykjanesbæ: „Ég sé ekki neinar hindranir“

Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ hefur hafið formlegar meirihlutaviðræður við Miðflokkinn í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna. Vilhjálmur Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins, segist afar bjartsýnn á samstarfið og telur að flokkarnir eigi mikla samleið í lykilmálum.

Vilhjálmur segir greinilegt að íbúar hafi kallað eftir breytingum í sveitarstjórnarkosningunum á laugardag. Hann þakkar árangurinn öflugum hópi og málefnalegri baráttu þar sem áhersla var lögð á skýra framtíðarsýn fyrir sveitarfélagið.

Ræða þegar saman

Aðspurður um næstu skref staðfestir Vilhjálmur að viðræður séu þegar hafnar milli flokkanna tveggja sem gætu myndað nýjan meirihluta.

„Já, við Gunnlaugur Kárason erum byrjaðir að ræða málin um hvort að við finnum ekki góðan grundvöll að samstarfi til þess að fara að vinna góð verk fyrir bæ tækifæranna.“

Þegar talið berst að málefnastöðu flokkanna og hvort stór ágreiningsmál séu til staðar, segir Vilhjálmur svo ekki vera. Undirtónninn í bæjarmálunum sé svipaður og áherslur flokkanna falli vel saman.

„Málefnin okkar voru mjög svipuð og sérstaklega í þessum skipulagsmálum, takast á við hælisleitendamálin, uppbyggingu í íþróttum og annað. Ég sé ekki neinar hindranir hvað málefnasamning varðar.“