Fréttir

Myndbandi eytt til að vernda hagsmuni þess sem var handtekinn
Frá vettvangi handtökunnar í morgun. Fjöldi viðbragðsaðila kom á vettvang.
Mánudagur 18. maí 2026 kl. 16:59

Myndbandi eytt til að vernda hagsmuni þess sem var handtekinn

Embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum segir ákvörðunina um að beita rafvarnarvopni í morgun hafa verið upplýsta en vopnið virkaði ekki sem skyldi vegna þess að því var beitt af löngu færi. Nefnd um eftirlit með lögreglu mun fá málið til skoðunar.

Embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum hefur sent frá sér tilkynningu vegna handtöku sem átti sér stað fyrr í dag þar sem rafvarnarvopni var beitt. Að sögn lögreglu var ákvörðunin um að nota vopnið upplýst og tekin eftir að aðrir valkostir við valbeitingu voru vegnir og metnir.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

„Lögreglumenn veltu öðrum valbeitingarvalkostum fyrir sér en mátu hættuna af skaða fyrir viðkomandi mikla, sem og hættu fyrir þau sjálf, vera þess eðlis að beiting rafvarnarvopns væri besti valkosturinn,“ segir í tilkynningunni.

Vopnið náði ekki tilætluðum árangri

Eftir skoðun á myndefni og tölfræði úr vopninu sjálfu liggur fyrir að lögreglumaðurinn hleypti pílunum af af löngu færi. Það varð til þess að virknin varð nánast engin. Rafleiðni vopnsins reyndist í algjöru lágmarki, ef nokkur, og náði aðgerðin því ekki tilætluðum árangri.

Báðu vegfaranda um að eyða myndbandi

Sérstaklega er vikið að því í tilkynningunni að lögreglumenn á vettvangi hafi rætt við vegfaranda sem tók handtökuna upp á síma sinn og farið fram á að viðkomandi eyddi myndefninu.

Lögreglan segir það hafa verið gert til að gæta hagsmuna mannsins sem var handtekinn, en hann er sagður hafa verið í miklu ójafnvægi og án fata á vettvangi.

Málið er á leið til frekari skoðunar þar sem embættið mun afhenda nefnd um eftirlit með lögreglu (NEL) málið til formlegrar yfirferðar.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar