Sjálfstæðisflokkurinn stærstur - lokatölur í Reykjanesbæ
Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkurinn í Reykjanesbæ samkvæmt lokatölum og fær fimm bæjarfulltrúa, bætir við sig tveimur frá síðustu kosningum. Flokkurinn fékk 39,2% atkvæða.
Framsóknarflokkurinn heldur sínum þremur fulltrúum og fékk 26,1% atkvæða.
Samfylkingin fékk 18,3% og tvo fulltrúa en missir einn fulltrúa frá síðustu kosningum.
Miðflokkurinn kemur nýr inn í bæjarstjórn með einn fulltrúa og fékk 11,2% atkvæða.
Viðreisn fékk 5,2% og nær ekki inn manni.
Alls eru ellefu fulltrúar í bæjarstjórn Reykjanesbæjar. Á kjörskrá voru 17.086 og kjörsókn var 51,6%.
Ýmsir möguleikar eru á myndun nýs meirihluta. Sjálfstæðisflokkurinn gæti myndað meirihluta með einhverjum hinna flokkanna. Þá gæti Framsókn og Samfylking sem leiddu síðasta meirihluta haldið áfram ef flokkarnir fengju Miðflokkinn með sér í lið.







