Aðeins meiri kjörsókn í Reykjanesbæ en í síðustu kosningum
Kjörstjórn er aðeins meiri en í sveitarstjórnarkosningunum 2022. Rúmlega 2% fleiri höfðu kosið kl. 19 en þá eru helmingi fleiri utankjörstaðaatkvæði en í síðustu kosningum.
Um kvöldmat höfðu 6350 manns kosið í Reykjanesbæ eða 37,42% en á sama tíma 2022 höfðu 5.1555 kosið eða 35,42%. Búist er við fyrstu tölum í Reykjanesbæ milli kl. 10.30 og 11.00 að sögn Jónu Hrefnu Bergsteinsdóttur formanns kjörstjórnar í Reykjanesbæ.
Rúmlega 17 þúsund manns eru á kjörskrá í ár en voru rúmlega 14 þúsund árið 2022.








