Nú má fáninn blakta allan sólarhringinn
Frá og með deginum í dag, 15. maí, taka gildi breyttar áherslur varðandi flöggun á Íslandi. Nú má íslenski fáninn blakta við hún allan sólarhringinn þar til í haust. Í tilefni þess er fólk og fyrirtæki á Suðurnesjum hvatt til að sýna lit og láta íslenska fánann blakta sem víðast í sumar.
Fáninn uppi yfir björtustu mánuðina
Steinþór Jónsson hótelstjóri hefur barist fyrir því að fáninn fái að njóta sín allan sólarhringinn yfir hásumarið, eða frá 15. maí til 15. september. Í stað þess að miða við hefðbundinn fánatíma, þar sem taka þarf fánann niður við sólarlag, er lögð áhersla á að nýta bjartar sumarnætur og leyfa fánanum að standa uppi sem tákn um samstöðu og stolt. Hann vakti athygli allra þingmanna á málinu í haust og tillagan varð svo að lögum nú í vor.
Hvatning til Suðurnesjafólks
„Það er fátt fegurra en að sjá íslenska fánann blakta við hún í björtu sumarveðrinu,“ segir Steinþór sem sjálfur stendur í stórræðum um helgina þar sem Hótel Keflavík fagnar 40 ára afmæli og Hildur eiginkona hans 60 ára afmæli. Þá hefst í dag vorhátíðin Vor á Vatnsnesi sem stendur fram á sunnudag.
Með því að flagga sýnum við virðingu fyrir landinu, sumrinu og þjóðinni sjálfri. Þetta er einföld en táknræn breyting sem gerir bæina okkar hér á Suðurnesjum enn fallegri og hátíðlegri.





