Sjálfstæðisflokkurinn - 16. maí
Sjálfstæðisflokkurinn - 16. maí

Fréttir

Ingvar Jónsson greindur með krabbamein
Ingvar Jónsson VF: JPK
Föstudagur 15. maí 2026 kl. 09:16

Ingvar Jónsson greindur með krabbamein

Ingvar Jónsson, aðalmarkvörður karlaliðs Víkings í knattspyrnu, hefur greinst með illkynja krabbamein. Þetta staðfesti félagið í yfirlýsingu á samfélagsmiðlum sínum.

Í tilkynningunni kemur fram að þessi frétt sé félaginu afar þungbær, en Ingvar sé nú á leið í lyfjameðferð vegna meinsins. Víkingar lýsa yfir fullum stuðningi við markvörðinn og fjölskyldu hans í þeirri baráttu sem framundan er.

Aðalbros
Aðalbros

„Víkingur mun styðja þétt við bakið á Ingvari og fjölskyldu hans í þessu erfiða verkefni og erum við þess fullviss um að hann hafi sigur að lokum, enda fæddur sigurvegari,“ segir í færslu félagsins.

Lykilmaður í Fossvoginum

Ingvar, sem er 36 ára gamall Njarðvíkingur, hefur verið í lykilhlutverki hjá Víkingi síðastliðin sex ár og átt stóran þátt í farsælu gengi liðsins á þeim tíma. Hann á að baki farsælan feril og hefur leikið átta landsleiki fyrir Íslands hönd.

Biðja um svigrúm og næði

Víkingur og fjölskylda Ingvars biðla til fjölmiðla og almennings um að sýna þeim skilning og veita þeim það svigrúm og næði sem þarf til að takast á við veikindin. Ljóst er að Ingvar mun ekki leika með liðinu á næstunni á meðan hann einbeitir sér að batanum.

Ingvar Jónsson. Mynd: KSÍ

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar