Fréttir

Oddvitasætið: Samstaða og öflugir innviðir
Fimmtudagur 14. maí 2026 kl. 12:11

Oddvitasætið: Samstaða og öflugir innviðir

Haukur Andreasson, oddviti D-listans og óháðra í Suðurnesjabæ, leggur ríka áherslu á að sameina íbúa og byggðakjarna sveitarfélagsins í gegnum markvissa stefnumótun og uppbyggingu. Hann sér fyrir sér bæ sem vex af skynsemi, þar sem íþróttaaðstaða er bætt strax á fyrstu metrunum og tekjugrunnurinn styrktur til að mæta hröðum vexti án þess að skuldsetja framtíðina.

Hvað telur þú vera stærsta kosningamálið í Suðurnesjabæ og hvers vegna?

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

„Mikilvægast er að ná fram samstöðu í bæjarfélaginu fyrir komandi verkefni.“

Ef þú mættir aðeins nefna eitt mál sem þið mynduð keyra í gegn á fyrstu 100 dögunum – hvað er það og hvernig munu íbúarnir finna fyrir því?

„Við munum hefja ferlið á að útbúa hálfan og hálfan gervigrasvöll í byggðakjörnunum. Íbúar munu því sjá þetta mál vera leitt til lykta.“

Hvað er það sem skilur ykkar framboð skýrast frá hinum flokkunum í Suðurnesjabæ í þessum kosningum?

„Við erum að hefja stefnumótun og byggja upp framtíðarsýn bæjarfélagsins sem mun sameina byggðakjarnana.“

Suðurnesjabær er sveitarfélag í örum vexti; hvernig ætlið þið að tryggja að innviðirnir haldi í við fjölgunina án þess að skuldsetja bæinn um of?

„Við leggjum mikla áherslu á að byggja upp tekjugrunninn til að mæta þeim aukna kostnaði sem felst í uppbyggingu án þess að það bitni á þjónustu við íbúa.“

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar