Oddvitasætið: Velferðarmálin skipta mestu máli
Svavar Grétarsson, oddviti Samfylkingarinnar og óháðra í Suðurnesjabæ, setur velferðarmálin í öndvegi fyrir komandi kjörtímabil. Hann boðar kostnaðargreindar umbætur sem miða að því að létta undir með barnafjölskyldum, bæta íþróttaaðstöðu og berjast fyrir byggingu hjúkrunarheimilis svo íbúar geti búið í sveitarfélaginu allt sitt æviskeið.
Hvað telur þú vera stærsta kosningamálið í Suðurnesjabæ og hvers vegna?
„Velferðarmálin skipta mestu máli vegna þess að þörf er á að jafna leikinn. Við ætlum að lækka kostnað á fjölskyldur og berjast fyrir hjúkrunarheimili svo allir geti búið í heimabyggð allt sitt æviskeið. Við ætlum að leggja áherslu á umbætur og aðstöðu í íþrótta- og tómstundamálum.“
Ef þú mættir aðeins nefna eitt mál sem þið mynduð keyra í gegn á fyrstu 100 dögunum – hvað er það og hvernig munu íbúarnir finna fyrir því?
„Við ætlum að setja gervigrasvallarmál í forgang og lækka álögur á barnafjölskyldur.
Þetta skilar sé í bættri aðstöðu fyrir börn og ungmenni sem stunda íþróttir og fjölskyldur finna fyrir minni álögum.“
Hvað er það sem skilur ykkar framboð skýrast frá hinum flokkunum í Suðurnesjabæ í þessum kosningum?
„Raunhæf og vel ígrunduð markmið sem hafa verið kostnaðargreind og teljum við okkur geta staðið við þau. Við höfum einnig talað skýrt í leikskólamálum.“
Suðurnesjabær er sveitarfélag í örum vexti; hvernig ætlið þið að tryggja að innviðirnir haldi í við fjölgunina án þess að skuldsetja bæinn um of?
„Við ætlum að halda jafnvægi í útgjöldum og tekjuöflun. Við teljum að Suðurnesjabær hafi svigrúm til aukinnar uppbyggingar og framkvæmda án mikilla skuldsetninga.
Á sama tíma er nauðsynlegt að við setjum af stað vinnu sem miðar að því að auka tekjur án þess að auka álögur á íbúa sveitarfélagsins.“








