Oddvitasætið: Meiri skynsemi í reksturinn
Í ört vaxandi samfélagi eins og Suðurnesjabæ skiptir hver króna máli. Daði Bergþórsson, oddviti Miðflokksins, telur að stærsta áskorunin fram undan sé að tryggja að fjármunum íbúanna sé forgangsraðað af meiri skynsemi en áður. Með síhækkandi framfærslukostnað í huga leggur Miðflokkurinn áherslu á að sveitarfélagið komi til móts við heimilin með lækkun álaga og ábyrgri fjármálastjórn.
Hvað telur þú vera stærsta kosningamálið í Suðurnesjabæ og hvers vegna?
Stærsta kosningamálið í Suðurnesjabæ er að mínu mati rekstur heimilanna og hvernig sveitarfélagið forgangsraðar fjármunum íbúanna. Fólk finnur fyrir síhækkandi kostnaði á öllum sviðum og sérstaklega barnafjölskyldur. Það er eðlilegt að íbúar spyrji hvort fjármunir þeirra séu alltaf nýttir á réttan hátt.
Við í Miðflokknum viljum meiri skynsemi í rekstri sveitarfélagsins og skýrari forgangsröðun. Markmiðið á að vera að létta undir með íbúum, styrkja grunnþjónustu og tryggja að skattpeningarnir fari fyrst og fremst í það sem skiptir fólk raunverulega máli.
Ef þú mættir aðeins nefna eitt mál sem þið mynduð keyra í gegn á fyrstu 100 dögunum – hvað er það og hvernig munu íbúarnir finna fyrir því?
Það er erfitt að lofa stórum breytingum á fyrstu 100 dögunum þar sem mörg þeirra mála sem við viljum vinna að eru háð fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
Eitt af þeim málum sem væri hægt að innleiða fljótt er aukin niðurgreiðsla á kortum fyrir ungmenni í íþróttamiðstöðvar Suðurnesjabæjar. Það myndi styðja betur við barnafjölskyldur, hvetja ungt fólk til hreyfingar og bæta aðgengi að heilbrigðu frístundastarfi.
Auðvitað eru fleiri mál sem hægt væri að fara af stað með strax, samhliða undirbúningi þeirra verkefna sem krefjast frekari vinnu og fjármögnunar.
Hvað er það sem skilur ykkar framboð skýrast frá hinum flokkunum í Suðurnesjabæ í þessum kosningum?
Ég tel að mál- efnamunurinn á milli framboða í Suðurnesjabæ sé að einhverju leyti ekki mjög mikill. Að vísu hafa ekki öll framboð kynnt sín málefni þegar þetta er skrifað. Hins vegar tel ég að okkar framboð skeri sig úr þegar kemur að skynsemi í rekstri og skýrari forgangsröðun í þágu íbúanna.
Við í Miðflokknum leggjum sérstaka áherslu á að lækka fasteignagjöld og draga úr álögum á heimilin. Sameinað sveitarfélag getur ekki endalaust rekið tvöfalt kerfi, ef við ætlum að gera það þá kemur það að lokum niður á þjónustu við íbúa.
Suðurnesjabær er sveitarfélag í örum vexti; hvernig ætlið þið að tryggja að innviðirnir haldi í við fjölgunina án þess að skuldsetja bæinn um of?
Fyrst og fremst þarf sveitarfélagið að hafa skýra stefnu um hversu hratt uppbygging á að eiga sér stað og tryggja að innviðir fylgi alltaf þeirri þróun. Það gengur ekki að byggja hratt upp án þess að leikskólar, skólar, gatnakerfi og önnur þjónusta séu tilbúin til að taka við fjölgun íbúa.
Sveitarfélag sem er í mikilli uppbyggingu þarf óhjákvæmilega á lánsfé að halda fyrir stærri og nauðsynlegar framkvæmdir. Hins vegar skiptir öllu máli að það sé gert af ábyrgð.
Miðflokkurinn vill leggja áherslu á skynsama fjármálastjórn, betri nýtingu fjármuna og skynsamlega uppbyggingu þar sem framkvæmdir ráðast af raunverulegri þörf en ekki of mikilli skuldsetningu. Markmiðið er að byggja upp sterkt sveitarfélag til framtíðar án þess að setja óhóflegar byrðar á íbúa eða rekstur bæjarins.







