Sjálfstæðisflokkurinn - 16. maí
Sjálfstæðisflokkurinn - 16. maí

Aðsent

Velferðarhús Reykjanesbæjar – betri þjónusta fyrir fötluð börn
Miðvikudagur 13. maí 2026 kl. 13:53

Velferðarhús Reykjanesbæjar – betri þjónusta fyrir fötluð börn

Á undanförnum árum hefur gríðarleg fjölgun orðið á íbúum Reykjanesbæjar og eru börn þar ekki undanskilin, en alls búa 7,6% allra barna á landinu í sveitarfélaginu. Börn með sérþarfir eru um 14,5% barna í Reykjanesbæ og því ljóst að þjónustuálag sveitarfélagsins er verulega meira en víða annars staðar á landinu. Þörfin fyrir þjónustu hefur aukist hratt á undanförnum árum og kallar það á markviss viðbrögð.

Þjónusta við fötluð börn er mikilvæg lögbundin þjónusta sem Reykjanesbær sinnir með öflugu og lausnamiðuðu fagfólki. Á síðustu árum hefur markvisst verið unnið að því að efla þjónustuna enn frekar, enda skiptir hún sköpum fyrir bæði börnin sjálf og fjölskyldur þeirra.

Aðalbros
Aðalbros

Má þar meðal annars nefna hópastarf fyrir fötluð börn sem hófst árið 2025. Þar hittast börn með sérþarfir undir leiðsögn starfsfólks, sinna áhugamálum sínum, kynnast öðrum börnum og efla félags- og lífsleikni í öruggu umhverfi. Hópastarfið hefur skilað mikilvægum árangri, biðlisti eftir liðveislu hefur tæmst og fleiri börn fengið þjónustu sem hæfir þörfum þeirra.

Þrátt fyrir það er skammtímavistun fyrir fötluð börn enn undir miklu álagi og biðlistar allt of langir. Fyrir vikið fá fjölmörg börn ekki þá þjónustu sem þau eiga skilið. Nú þegar er unnið að úrbótum, en ljóst er að áfram þarf að byggja upp öflugri úrræði til að mæta þörfum barnanna og fjölskyldna þeirra. Fyrst og fremst skiptir mig máli að þessi hópur fái raunverulegan stuðning við hæfi.

Markmið okkar er að opna Velferðarhús Reykjanesbæjar sem mun hýsa meðal annars skammtímavistun fyrir fötluð börn, eftirskólaúrræði, hópastarf og aðra þjónustu sem þarfir barnanna kalla á. Með því skapast tækifæri til að sameina mikilvæga þjónustu á einum stað, stytta biðlista og byggja upp sterkari stuðning við fjölskyldur í sveitarfélaginu.

Foreldrar og aðstandendur fatlaðra barna hafa lengi þurft að berjast fyrir þeirri þjónustu og þeim lífsgæðum sem ættu að vera sjálfsögð. Það hlýtur að vera sameiginlegt markmið okkar að tryggja að fötluð börn í samfélaginu fái þann stuðning og þau tækifæri sem þau eiga svo sannarlega rétt á.

Sigurrós Antonsdóttir,
frambjóðandi á lista Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar