Landsbankinn - 12. maí
Landsbankinn - 12. maí

Fréttir

Alvarleg ummæli frambjóðanda í garð sviðsstjóra
Guðlaugur H. Sigurjónsson og Hjörtur M. Guðbjartsson. Myndin er samsett.
Þriðjudagur 12. maí 2026 kl. 20:37

Alvarleg ummæli frambjóðanda í garð sviðsstjóra

Mikill hiti virðist vera hlaupinn í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna í Reykjanesbæ. Hjörtur Magnús Guðbjartsson, sem skipar annað sæti á lista Samfylkingarinnar í bænum, hefur beðist afsökunar á óviðeigandi ummælum sem hann lét falla um Guðlaug Sigurjónsson, sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs.

Atvikið átti sér stað í fyrirtækjaheimsókn hjá verktaka nýverið. Samkvæmt heimildum mbl.is ræddi frambjóðandinn skipulagsmál í bænum og lét þá þau orð falla að hann vildi helst taka sviðsstjórann „bak við húsvegg og skjóta hann“.

Aðalbros
Aðalbros
Tilkynnti málið til yfirmanns

Ummælin bárust fljótlega til eyrna Guðlaugs sviðsstjóra, sem staðfesti í samtali við mbl.is að hann hefði látið yfirmann sinn vita af málinu eftir að hafa fengið efni fundarins staðfest hjá fundarmönnum.

Skömmu síðar hafði Hjörtur samband við sviðsstjórann til að biðjast afsökunar. Hann kveðst hafa látið orðin falla í hita leiksins en Guðlaugur segir að fyrir sitt leyti sé málinu lokið og vill ekki tjá sig frekar um atvikið að svo stöddu.

Reyndur bæjarfulltrúi

Hjörtur Magnús er enginn nýliði í bæjarpólitíkinni en hann hefur setið sem bæjarfulltrúi fyrir Samfylkinguna á yfirstandandi kjörtímabili. Þá gegnir hann einnig embætti formanns stjórnar Reykjaneshafnar. Samfylkingin hefur verið í meirihluta í Reykjanesbæ síðustu fjögur ár.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar