Miðflokkurinn í Reykjanesbæ  - 16 maí
Miðflokkurinn í Reykjanesbæ  - 16 maí

Fréttir

Suðurnesjabær lækkar álögur á barnafjölskyldur
Þriðjudagur 12. maí 2026 kl. 13:52

Suðurnesjabær lækkar álögur á barnafjölskyldur

Bæjarráð Suðurnesjabæjar samþykkti einróma á 189. fundi sínum að ráðast í lækkanir á völdum liðum í þjónustugjaldskrá sveitarfélagsins. Þessi ákvörðun er liður í víðtækari stuðningi við verðbólgumarkmið og er sérstaklega ætlað að létta undir með heimilum í bæjarfélaginu á tímum mikils verðbólguþrýstings.

Breytingarnar taka gildi þann 1. júní næstkomandi og fela í sér 3% lækkun á margvíslegri þjónustu sem snýr beint að barnafólki. Meðal þess sem lækkar er tímagjald og fæðisgjald í leikskólum, ásamt vistunar-, tíma- og fæðisgjöldum í skólaseli. Þá munu námsgjöld og hljóðfæraleiga við Tónlistarskólann einnig lækka um sömu prósentu.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Með þessum aðgerðum leggur Suðurnesjabær áherslu á að veita góða þjónustu á hagstæðu verði og sýna samfélagslega ábyrgð með því að draga úr útgjöldum fjölskyldna. Bæjarstjórn telur mikilvægt að sveitarfélagið leggi sitt af mörkum til að styðja við efnahagslegan stöðugleika um leið og hagsmunir íbúa eru hafðir að leiðarljósi.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar