Sjálfstæðisflokkurinn - 16. maí
Sjálfstæðisflokkurinn - 16. maí

Fréttir

Grindvíkingar funduðu með forsætisráðherra
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 8. maí 2026 kl. 09:56

Grindvíkingar funduðu með forsætisráðherra

Bæjarstjórn Grindavíkur fund með forsætisráðherra og hennar fólki til að fylgja eftir málum nú vikunni. Bæði á íbúafundinum og á fundinum með ráðherra var farið yfir þau stóru mál sem brenna á Grindvíkingum; sálrænan stuðning, áhættumat, húsnæðismálin hjá Fasteignafélaginu Þórkötlu og framtíð skólamála í bænum. Þetta samtal mun halda áfram með nýrri bæjarstjórn sem verður kjörin á næstunni. Þetta kemur fram í lokapistli bæjarstjórnar á þessu kjörtímabili.

Framkvæmdir sumarsins og minjavarsla: Græðum sárin

„Sumarið framundan verður nýtt til að græða sárin innanbæjar. Meðal annars stendur til að hefjast handa við framkvæmdir á skólalóðinni við Ásabraut, endurnýja leiktæki og fegra þau svæði þar sem niðurrif hefur átt sér stað. 

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Niðurrifsverkefnin ganga mjög vel en eru eðli málsins samkvæmt tímafrek. Stefnt er að því að búið verði að fjarlægja öll hús á sprungusvæðum fyrir lok sumars. Fljótlega hefst niðurrif við Víkurbraut en þar verður sérstaklega hugað að minjavörslu. Við leggjum mikla áherslu á að varðveita ákveðna hluti og einkenni húsa á svæðinu. Þannig viljum við halda til haga áþreifanlegum vitnisburði um húsin og það samfélag sem þar blómstraði og skapa jafnframt minningu um þær hamfarir sem gengið hafa yfir. 

Staðan á sprunguviðgerðum

Markvissar sprunguviðgerðir eru í fullum gangi og munu standa yfir fram í næsta vetur. Þessa dagana er til að mynda verið að vinna að viðgerðum við íþróttahúsið. Fljótlega munu viðgerðir svo hefjast á nýjum svæðum, þar á meðal við Austurveg og Mánagötu, á svæðinu við Staðarsund og Vörðusund, sem og á æfingavellinum og upp að Suðurhópi (alla leið frá Salthúsinu),“ segir í pistlinum en þar eru lokaorðin um gott gengi Grindavíkurliðanna í úrslitakeppni Bónus deildar í körfubolta en þar eru karlarnir komnir í úrslit en konurnar duttu út gegn Njarðvík í undanúrslitum.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar