Miðflokkurinn í Reykjanesbæ  - 16 maí
Miðflokkurinn í Reykjanesbæ  - 16 maí

Fréttir

Enn vantar upp á hjá börnum með erlent ríkisfang
Miðvikudagur 6. maí 2026 kl. 06:16

Enn vantar upp á hjá börnum með erlent ríkisfang

Veruleg fjölgun iðkenda í Reykjanesbæ.

Iðkendum í íþrótta- og tómstundastarfi í Reykjanesbæ fjölgaði um rúm fimm prósent á milli áranna 2024 og 2025. Þótt þátttaka aukist jafnt og þétt hjá börnum með íslenskt ríkisfang virðist erfiðara að ná til barna með erlent ríkisfang en hlutfall þeirra sem stunda skipulagt starf lækkaði lítillega á milli ára.

Hafþór Birgisson, íþrótta- og tómstundafulltrúi Reykjanesbæjar, fór yfir nýjustu tölur úr mælaborði þátttöku á fundi íþrótta- og tómstundaráðs í síðustu viku. Tölurnar sýna að árið 2025 stunduðu 4.723 börn í bænum einhvers konar íþrótt eða tómstund, sem er aukning frá því að vera 4.493 árið áður.

Aðalbros
Aðalbros

Almenn þátttaka eykst
en bilið breikkar

Heildarhlutfall barna í Reykjanesbæ sem stunda skipulagt starf hækkaði úr 61% í tæp 64%. Þegar rýnt er í tölurnar sést hins vegar ákveðinn munur eftir ríkisfangi. Þátttaka barna með íslenskt ríkisfang hækkaði verulega, eða úr 67,1% í 72,4%.

Á sama tíma lækkaði hlutfall iðkenda með erlent ríkisfang úr 35,9% í 34%. Athygli vekur að þótt iðkendum í þessum hópi hafi fjölgað í tölum talið þá er sú fjölgun hlutfallslega minni en nemur fjölgun barna með erlent ríkisfang í sveitarfélaginu í heild. Þetta bendir til þess að íþróttahreyfingunni gangi hægar að innleiða nýja íbúa af erlendum uppruna í starfið en þá sem fyrir eru.

Drengir sækja fastar í starfið en stúlkur

Kynjahallinn er einnig merkjanlegur í mælaborðinu. Drengir í Reykjanesbæ eru mun virkari en stúlkur og jókst þátttaka þeirra úr tæpum 62% í rúm 66%. Stúlkur bæta líka við sig, en hlutfall þeirra fór úr 60,1% í 61,7%.

Íþrótta- og tómstundaráð fagnaði aukinni þátttöku almennt en ljóst er að tölurnar verða nýttar til að rýna hvar þörf er á frekari sókn, sérstaklega gagnvart stúlkum og börnum af erlendum uppruna. Fyrir þá sem vilja kynna sér málið nánar hefur Reykjanesbær opnað gagnvirkt mælaborð á vef sínum þar sem hægt er að rýna í þróunina eftir aldri, hverfum og kynjum.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar