Við erum fólkið á gólfinu!
Oft er það svo hjá fyrirtækjum, stórum sem smáum, að teknar eru ákvarðanir um breytingar án samráðs eða samtals við starfsfólkið sem stendur í hringiðunni alla daga.
Þetta er ekkert öðruvísi hjá ríki og sveitarfélögum. Fagfólkið okkar, sem starfar hjá Reykjanesbæ af heilindum og hugsjón, gleymist oft þegar hugað er að breytingum. Það verður að laga. Við verðum að hlusta á sérfræðinga og reynslumesta starfsfólk Reykjanesbæjar áður en ráðist er í framkvæmdir því þar liggur þekkingin og reynslan.
Við í Viðreisn viljum styðja betur við starfsfólk sveitarfélagsins. Okkur er annt um vellíðan þess og viljum hlúa betur að andlegri og líkamlegri heilsu þess og þar með skapa umhverfi þar sem fólki líður vel og það blómstrar í starfi. Óraunhæft er að ætlast til þess að allir séu á sama máli um alla hluti. Virk hlustun og virðing fyrir ólíkum sjónarmiðum er forsenda þess að hægt sé að eiga gott samtal og leysa mál á farsælan hátt fyrir íbúa Reykjanesbæjar.
Við viljum að rödd fólksins á gólfinu heyrist. Ekki eftir á, þegar búið er að taka ákvarðanir, heldur áður en þær eru teknar.
Til að það gangi eftir þarf rétt fólk í réttar stöður.
Mikilvægt er að bæjarbúar kynni sér alla frambjóðendur þeirra framboða sem bjóða fram, ekki einungis þau sem skipa efstu sætin. Í kjölfar kosninga munu flokkarnir nefnilega eiga fulltrúa í ráðum, nefndum og stjórnum á vegum bæjarins og þá eru það oftar en ekki einstaklingar neðar á listunum sem taka sæti. Um er að ræða mikilvæg og launuð ábyrgðastörf sem krefjast hæfra einstaklinga.
Við ætlum að fara vel með traust ykkar og ábyrgð okkar en umfram allt, hlusta á fólkið á gólfinu því við erum sjálf, öll 22, fólkið á gólfinu!
Gunnhildur Brynjólfsdóttir
Höfundur skipar 12.sæti á lista Viðreisnar í Reykjanesbæ








