Skipulag er ekki bara teikningar á blaði það er framtíð samfélagsins
Í skipulagsmálum er mikilvægt að horfa heildstætt til þróunar sveitarfélaga – hvernig byggðin vex, hvernig samgöngur tengjast, og hvernig þjónusta og opin svæði styðja við daglegt líf fólks. En við verðum að gera framtíðarplan.
Það er ekki nóg að segja að við ætlum að byggja séreignir núna til að lækka verðið á þeim svo unga fólkið geti á endanum keypt sér sérbýli hér. Við verðum að byrja á réttum stað með fjölbreyttari framboði af eignum, skapa tækifæri fyrir þau til að kaupa sína fyrstu eign núna. Ef unga fólkið kaupir sér fyrstu eign í öðru sveitarfélagi eru líkur á að það snúi ekki til baka, þegar það er búið að festa rætur þar.
Áhersla á fagleg vinnubrögð, gagnsæi og ábyrga fjármálastjórn samræmist vel þeirri sýn að skipulag og uppbygging eigi að vera langtímamiðuð og byggð á skýrum gögnum og rökum, ekki skammtímapólitískum sjónarmiðum. Jafnframt leggjum við áherslu á að við ákvarðanatöku sé hlustað á íbúa og rödd þeirra styrkt í mótun nærumhverfis síns.
En hvernig ætlum við í Viðreisn að tryggja íbúðalýðræði?
Við ætlum að koma á hagsmunamati í allar nefndir og ráð þar sem allir íbúar eiga rödd. Einnig ætlum við að sjá til þess að íbúafundir verði haldnir reglulega þar sem rödd íbúa hefur vægi, ekki bara á lokastigi verkefna heldur líka á hugmyndastigi. Því of oft hefur skort á undirbúnings áður en framkvæmdir hefjast þar sem ákvarðanir eru teknar án nægilegrar framtíðarsýnar eða án virks samráðs við íbúa.
Við náum árangri saman!
Davíð Skarphéðinsson
Höfundur skipar 2.sæti á lista Viðreisnar í Reykjanesbæ.








