Hvernig samfélagi viljum við tilheyra?
Velferðarnet Suðurnesja er samræmd móttökuáætlun fyrir nýja íbúa sveitarfélaganna á Suðurnesjum.
Ég vil samfélag þar sem gott velferðarnet er og þar sem sveitarfélagið grípur einstaklinginn. Þegar samfélagið okkar var í dvala á covid-tímum þá fórum við í naflaskoðun og var þá farið í samstarfsverkefni til að vinna að góðu velferðarneti, Velferðarnet Suðurnesja.
Velferðarnetið var leitt af Reykjanesbæ í samstarfi við samband sveitarfélaga á Suðurnesjum. Sem dæmi um samstarfsverkefni sem koma á eftir Velferðarneti Suðurnesja eru m.a. Öruggari Suðurnes, Farsældarráð Suðurnesja, aukið samstarf Reykjanesbæjar við Vinnumálastofnun, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum og Sýslumann. Á sama tíma var farið í að vinna að farsældarfrumvarpi hjá ríkinu sem er unnið í samfellu í velferðarþjónustu og unnið er í þremur þrepum: fyrsta stig, annað stig og svo þriðja stig sem eru skilgreind sem þyngstu verkefnin hjá velferðarsviði.
Við höfum sýnt það áður að við þorum að vera leiðandi. Við vorum fyrst sveitarfélaga á landsvísu til að innleiða farsældarlögin hér á Suðurnesjum. Sú vegferð sýndi að við höfum kjarkinn til að forgangsraða í þágu barna og fjölskyldna. Nú skulum við nota þann sama kraft til að klára dæmið í málefnum fatlaðs fólks og aldraðra. En við höfum séð það ár eftir ár, kjörtímabil eftir kjörtímabil, að það vantar verulega upp á að sveitarfélögin fá jafnt frá jöfnunarsjóði á landsvísu.
Velferðarnet var samstarfsverkefni sveitarfélaganna á Suðurnesjum og fjögurra ríkisstofnana sem eru í beinni þjónustu við íbúa á Suðurnesjum, þ.e. Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Lögreglunnar, Sýslumanns og Vinnumálastofnunar.
Velferðarnet Suðurnesja stuðlar að auknum lífsgæðum íbúa í formi virkni og vellíðunar.
Opnuð var vefsíða www.sudurnes.is og tilgangur hennar er fyrst og fremst fyrir fagfólk í velferðarþjónustu á Suðurnesjum og þá tækifæri íbúa til félagslegrar þátttöku voru aukin með bættu aðgengi að opinberri velferðarþjónustu. Vefsíðunni er ætlað að vera lendingarsíða af opinberum síðum svæðisins þar sem unnið er með níu þemu: Fyrstu skrefin, húsnæði, atvinna, börn og fjölskyldur, samgöngur, afþreying og menning, velferð og heilsa, menntun fullorðinna, endurvinnsla og úrgangur. Vefsíðan veitir nýjum íbúum tækifæri til að afla sér upplýsinga um hin ýmsu málefni sem brenna á þeim þegar þeir flytja til Suðurnesja.
Margt hefur áunnist á þessum fimm árum, þá ekki síst í sjálfbærni í þjónustu við íbúa á sviði félags-, mennta- og heilbrigðismála hjá opinberum stofnunum á Suðurnesjum. Mjög verðugt og flott verkefni sem hefur verið leitt með það markmið að styrkja þverfaglegt samstarf þjónustuaðila í nærsamfélagi íbúa og tengslanet á milli framlínu fólks á velferðarsviði þvert á stofnanir á Suðurnesjum sem telja um 2.500 manns.
Við viljum að nýir íbúar upplifi sig velkomna, séu upplýstir um helstu þjónustu og afþreyingu á svæðinu og verði sem allra fyrst virkir þátttakendur í samfélaginu. Velferðarnet er eins og samfélagsnet þar sem ríki og sveitarfélög eiga að grípa þá sem standa höllum fæti, veita heilbrigðisþjónustu, menntun og tryggja tekjuöryggi.
Með kveðju.
Sigurrós Antonsdóttir
6. Sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ
-formaður velferðarráðs
-bæjarfulltrúi







