Opinn málfundur með frambjóðendum í beinu streymi á mánudag
Málfundafélagið Faxi í samstarfi við Víkurfréttir og Reykjanesbæ efnir til opins málfundar með öllum framboðum í Reykjanesbæ í Bergi, Hljómahöll, nk. mánudag 4. maí klukkan 19:30.
Þetta er í þriðja sinn sem málfundafélagið Faxi gengst fyrir opnum framboðsfundi og hafa oddvitar allra framboða boðað komu sína á fundinn.
Faxafélagar annast skipulag og umsjón með fundinum og verður bryddað upp á nýjungum í annars hefðbundu fundafyrirkomulagi.
Í Bergi í Hljómahöll gefst bæjarbúum kostur á að sjá frambjóðendur segja frá stefnu framboða sinna og heyra þá rökræða hver við annan.
Víkurfréttir munu streyma fundinum beint á vf.is en áætlað er að fundinum ljúki klukkan 22:00

