Langbest Sumardagurinn fyrsti
Langbest Sumardagurinn fyrsti

Aðsent

Enginn hefur spurt mikilvægustu spurningarinnar um nýja gervigrasvöllinn
Föstudagur 1. maí 2026 kl. 12:54

Enginn hefur spurt mikilvægustu spurningarinnar um nýja gervigrasvöllinn

Enginn hefur spurt mikilvægustu spurningarinnar um nýja gervigrasvöllinn: Hvernig komast börnin okkar úr hinum bæjarkjarnanum á æfingar, örugg, allt árið um kring?

Álfhildur Sigurjónsdóttir Heide, heiðurssæti á lista Miðflokksins í Suðurnesjabæ, skrifar:

Aðalbros
Aðalbros

Kæru Suðurnesjabæjarbúar.

Árið 2018 voru Garður og Sandgerði sameinuð í eitt bæjarfélag, Suðurnesjabæ. Ég kaus já í þeirri atkvæðagreiðslu þar sem ég taldi að við sem ein heild værum sterkari saman.

Ég hef setið hljóð síðan þá og fylgst með umræðunni hvernig „mismunun" á milli bæjarkjarna er algjör og fer það eftir því hver talar á hvern hallar. Þetta er sorgleg staðreynd og þurfum við sem Suðurnesjabæjarbúar að breyta þessu viðhorfi og fara að vinna saman í því að verða ein heild.

Við þurfum sameiginlega framtíðarsýn, sterka og áhugasama kjörna fulltrúa sem þora að taka misvinsælar en nauðsynlegar ákvarðanir. Upplýsa bæjarbúa um málefnin og fá fólk til að vinna saman að sameiginlegum verkefnum.

Gervigrasvöllurinn

Gervigrasvöllurinn er gott dæmi um sundrungu bæjarkjarnanna. Hér er sameiginlegt verkefni sem við ættum að vera stolt af og sameinast um að fylgja því eftir og klára það.

Þetta verkefni er orðið mjög kostnaðarsamt bara í hönnun vegna ágreinings á milli fólks um staðsetningu. Því miður er þetta orðið að keppni á milli hverfa um hver „vinni" grasvöllinn til sín og enginn hefur tekið stóru ákvörðunina um staðsetningu. Málið er í bið og enginn nýtur vallarins á meðan.

Það sem hryggir mig í þessu máli er það sem enginn hefur rætt og spurt út í, og í rauninni það sem skiptir mestu máli: hvernig blessuð börnin okkar úr hinu hverfinu eiga að ferðast á milli til að stunda æfingar á þessum velli.

Við þurfum að breyta fókusnum á staðsetningunni og fá skýr svör um notkunina. Hvernig komast börnin úr hinum bæjarkjarnanum örugg á milli allt árið um kring? Þetta hefur aldrei borið á góma í allri umræðunni. Þessi spurning skiptir fólk mestu máli í daglegu lífi.

Ef við eigum að eiga þennan völl saman og nota sameiginlega verður fólk að vera öruggt um börnin sín. Það er ekki hægt að fara fram á að barnafólk sjái sjálft um skutlið á daginn.

Við ættum að sameinast um að klára þetta verkefni og vera stolt af því saman sem ein heild.

Samkomuhúsin

Það er í alvöru kominn tími til að við hættum að tala um hvað vantar og „hvað hinir fá" og vinnum saman í því að gera bæinn okkar að betri bæ.

Í 4000 manna byggðarlagi er eitt samkomuhús sem tekur um það bil 150 manns í sæti. Finnst fólki þetta vera í lagi?

Hér í Garði er samkomuhús sem liggur undir skemmdum og kjörnir fulltrúar hafa engan áhuga á að laga. Í dag er það notað sem geymsla fyrir Byggðasafnið. Samkomuhús snýst ekki bara um veggi og þak. Það er hjarta samfélagsins, staður þar sem fólk hittist og heldur viðburði saman.

Við þurfum að taka þá sameiginlegu ákvörðun að endurbyggja þetta hús og gera það lifandi aftur. Þetta er ekki spurning um hvort við höfum efni á því að laga það, heldur hvort við höfum efni á að láta það sitja á hakanum einn áratug í viðbót.

Íbúar í Garði hafa fengið að nota salinn í Gerðaskóla en það er ekki sanngjarnt gagnvart skólastarfseminni að vera endalaust með viðburði í salnum og jafnvel á skóladegi. Samkomuhúsið í Sandgerði þarf einnig sína upplyftingu, en að mínu mati er það ekki nóg fyrir okkar samfélag að það hús eitt og sér þjóni okkur íbúunum því það eru bara um það bil 150 sæti.

Kalda vatnið

Eitt mál sem hefur fengið að þrífast allt of lengi og er staðreynd sem þarf að laga, strax, er mismunun á kostnaði kalda vatnsins.

Ég og nágranni minn úr suðurbænum bárum saman vatnsgjaldsreikningana okkar. Við erum í sömu stærð af húsi og með jafn stóran bílskúr. Það er staðreynd að hann í Sandgerði er að borga tugum þúsunda meira á ári fyrir kalt vatn en við hérna í norðurbænum.

Þetta er mismunun á milli bæjarkjarna sem þarf að laga, hvernig sem það verður gert. Eins og ég sagði fyrr í þessum pistli þurfum við núna að fá kjörna fulltrúa sem þora að taka ákvarðanir og hafa áhuga á málefninu. Öðruvísi verður engu breytt og fólk heldur áfram þessari „keppni" á milli bæjarhluta.

Tækifærin

Í okkar bæjarfélagi eru fjölmörg tækifæri til uppbyggingar sem við getum farið í sameiginlega.

Stórefla þarf samgöngur sem hægt er að treysta á fyrir þá iðkendur sem stunda tómstundir í Reykjanesbæ. Eins og staðan er núna vantar mikið upp á að foreldrar geti notað þessar ferðir sem eru í boði fyrir börnin sín.

Tómstundastarf eldri og yngri borgara er til fyrirmyndar hér í bæ, en má efla það enn frekar. Menningarviðburðir eru ekki margir og þarf að lyfta grettistaki í þeim málum. Það myndi stóreflast og lifna við ef samkomuhúsin væru fleiri og aðgengilegri.

Að lokum

Mannauður okkar er svo flottur og margbreytilegur sem gerir okkur sterk í þeim verkefnum sem við veljum að takast á við saman.

Til að breytingar og friður á milli bæjarkjarna komist á verðum við að fara saman í þá vegferð að hætta gömlum „hrepparíg" sem á ekki lengur við og ákveða að lifa og starfa saman. Að gera okkar samfélag sterkt og öflugt og búa til stað þar sem börnin okkar verða stolt af því að segjast vera frá Suðurnesjabæ. Það er kynslóðin sem tekur við af okkur og hugsar um okkur í ellinni.

Við í Miðflokknum höfum trú á að þetta geti orðið okkar veruleiki. Að við sem bæjarbúar tökum höndum saman og vinnum til framtíðar sem eitt teymi.

Notum næstu fjögur ár vel og klárum sameininguna sem eitt teymi.

Setjum X við M.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar