Okkar leið í Vogum - byggir á samtali
Það er sannkölluð lýðræðisveisla í gangi og mikil orka í samfélaginu enda styttist í kosningar. Eitt af grundvallaratriðum lýðræðislegs samfélags er samtalið en það er mikilvægt að hafa það hugfast að samtal er ekki bara orð á blaði heldur leið til að taka betri ákvarðanir.
Það var útgangspunkturinn í vinnu okkar við stefnuskrá D-listans, Sjálfstæðismanna og óháðra í Vogum. Við lögðum upp með að hlusta. Ekki bara til að safna hugmyndum, heldur til að móta stefnu sem endurspeglar raunverulegt líf í sveitarfélaginu. Stefnuskrá verður nefnilega ekki til í tómarúmi. Hún á að byggja á reynslu fólksins sem býr hér, starfar hér og nýtir þjónustuna á hverjum degi. Það var okkar leiðarljós.
Í stað þess að skrifa stefnuskrá á bak við luktar dyr fórum við út í samfélagið. Við heimsóttum fyrirtæki, stofnanir og hagaðila þar sem við hlustuðum á það sem vel er gert, það sem má bæta og hvar tækifærin liggja. Samhliða því lögðum við sérstaka áherslu á að ná til íbúa. Með rafrænni könnun og opnum málefnafundi gáfum við fólki raunverulegt tækifæri til að hafa áhrif á stefnumótunina. Þessi skref snerust ekki um að haka í box, heldur um að tryggja raunverulegt samráð.
Svona viljum við að stjórnsýsla sveitarfélagsins virki og svona viljum við vinna með samfélaginu okkar næstu fjögur árin. Þar sem við aukum samtalið og mótum framtíðina saman. Við heyrum það einfaldlega af samtölum okkar og finnum það á eigin skinni að við þurfum að efla samtal í sveitarfélaginu, bæta upplýsingagjöf og tryggja að íbúar hafi raunveruleg áhrif. Ekki bara á fjögurra ára fresti, heldur í daglegum ákvörðunum.
Afurð vinnu síðustu vikna er stefnuskrá sem er ekki aðeins okkar, heldur samfélagsins alls. Hún byggir á því sem gengur vel og setur jafnframt skýra stefnu um hvernig við viljum vinna: með opnara samtali, betri upplýsingum og meiri þátttöku íbúa. Það er okkar leið í Vogum.
Við kynnum stefnuskrána laugardaginn 2. maí kl. 14, á kosningaskrifstofu D listans í Vogum, og eruð þið öll velkomin til að njóta góðra veitinga, samveru og samtals um framtíð sveitarfélagsins.
Björg Ásta Þórðardóttir, oddviti og bæjarstjóraefni og
Guðmann Rúnar Lúðvíksson sem skipar 2. sæti D-listans - Sjálfstæðismanna og óháðra í Vogum.








