Ungt fólk er framtíð Reykjanesbæjar
Ungt fólk á ekki að þurfa að flytja burt til að finna tækifæri. Það á að geta byggt upp líf sitt í Reykjanesbæ, með raunverulegum möguleikum á menntun, atvinnu, húsnæði og samfélagi sem styður við drauma þess. Til þess þarf að hlusta á raddir ungs fólks og leyfa þeim að hafa raunveruleg áhrif.
Menntun skiptir miklu máli. Í Reykjanesbæ þarf ungt fólk að hafa möguleika á fjölbreyttu námi hvort sem það er í framhaldsskóla, iðnnámi eða eitthvað annað. Einnig þarf að tryggja stuðning fyrir þau sem þurfa meiri aðstoð, svo allir hafi jafna möguleika til að mennta sig og þroskast. Menntun er mikilvæg fyrir aukið sjálfstraust og virkri þátttöku í samfélaginu.
Vinna er líka lykilatriði. Ungt fólk þarf ekki bara einhverja vinnu heldur vinnu sem gefur tækifæri til að læra og vaxa. Ef fleiri spennandi störf eru í boði sér fólk frekar fyrir sér framtíð í bænum. Það styrkir samfélagið í heild og dregur úr brottflutningi.
Húsnæði er stórt mál. Það er erfitt fyrir marga unga í Reykjanesbæ að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Það þarf að gera það auðveldara svo fólk geti flutt að heiman og byggt upp sitt eigið líf.
En lífið er meira en menntun, vinna og húsnæði. Reykjanesbær þarf líka að vera lifandi, skapandi og skemmtilegur staður að búa á. Ungt fólk vill hafa aðgang að menningu, viðburðum og rýmum til að hittast, skapa og njóta. Með því að efla listir og tómstundir er hægt að byggja upp samfélag þar sem fólki líður vel og vill taka þátt.
Þátttaka ungs fólks í Reykjanesbæ er lykilatriði. Það mikilvægasta er að ungt fólk fái rödd. Þegar það fær að taka þátt og hafa áhrif verður samfélagið sterkara og skemmtilegra.
Heildarmyndin hjá okkur í Framsókn er skýr. Ef við viljum að ungt fólk verði áfram í Reykjanesbæ þurfum við að hugsa um allt þetta saman. Þá verður bærinn staður þar sem fólk vill vera. Ekki annars staðar, heldur hér heima.

Hekla Ingvadóttir og Yasmin Petra Younesdóttir,
frambjóðendur Framsóknar í Reykjanesbæ til sveitarstjórnarkosninga 16. maí nk.