Ekki fleiri flóttamannasamningar
Síðastliðin átta ár hef ég verið bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ. Ég hef lagt mig fram um að sinna því af kostgæfni og vinnusemi með hagsmuni íbúanna að leiðarljósi. Sá málaflokkur sem hefur vaxið hvað mest að umfangi á þessu tímabili og valdið íbúunum áhyggjum eru málefni flóttamanna og hælisleitenda. Ég hef ekki setið hljóð hjá í þessu stóra máli, enda skylda mín að hlusta á bæjarbúa og bregðast við eins og kostur er.
Þróunin í móttöku flóttamanna og hælisleitenda í Reykjanesbæ hefur farið langt umfram það sem samfélagið getur staðið undir. Við þessu vöruðum við sjálfstæðismenn margsinnis en töluðum lengi vel fyrir daufum eyrum Samfylkingar, Framsóknar og Beinnar leiðar.
Ég hef ítrekað gagnrýnt þá samninga sem gerðir hafa verið við ríkið um móttöku flóttamanna. Með bókunum og skrifum hef ég bent á skort á samráði, óljósar forsendur og þá staðreynd að fjárhagsleg ábyrgð lendir að lokum á sveitarfélaginu sjálfu.
Það hefur komið bersýnilega í ljós að áhyggjur mínar voru á rökum reistar.
Þegar ríkið sagði upp flóttamannasamningi sínum við Reykjanesbæ sat sveitarfélagið eftir með skuldbindingar, langtímahúsaleigusamninga og verulegan kostnað – kostnað sem féll að sjálfsögðu á bæjarbúa. Þetta er sá veruleiki sem við höfum staðið frammi fyrir.
Við sjálfstæðismenn segjum skýrt: Ekki fleiri flóttamannasamninga, við höfum skilað okkar.
Samsetning á móttöku flóttamanna og hælisleitenda hér hefur verið ólík því sem gerist annars staðar. Hlutfall einhleypra karla hefur verið hátt og það hefur fyrirsjáanleg áhrif á samfélagið. Íbúar hafa lýst áhyggjum af auknu álagi í daglegu lífi og upplifun í almenningsrýmum. Þetta eiga bæjarbúar ekki að þurfa að líða.
Ríkið tók á sínum tíma ákvarðanir um að leigja heilu blokkirnar undir hælisleitendur án samráðs við sveitarfélagið. Slík vinnubrögð eru algerlega óásættanleg og sýna skýrt hversu lítið tillit hefur verið tekið til sveitarfélagsins og íbúa þess af hálfu hins opinbera.
Ég hef ávallt staðið fast á því að Reykjanesbær þurfi að standa í lappirnar gagnvart ríkinu og það ætlum við sjálfstæðismenn að gera hljótum við traust bæjarbúa í komandi kosningum.
Sjálfstæðisflokkurinn er með skýra stefnu fyrir kosningarnar 16. maí.
Ekki verða gerðir fleiri samningar við ríkið um móttöku flóttamanna á komandi kjörtímabili og við ætlum að setja skýr mörk svo íbúar finni fyrir öryggi í sínu nærumhverfi. Þá ætlum við að standa í lappirnar gagnvart ríkinu ef það gengur á okkar hagsmuni.
Þetta snýst ekki um skort á vilja til að hjálpa heldur um ábyrgð.
Ábyrgð gagnvart íbúum sveitarfélagsins.
Ábyrgð gagnvart ásýnd Reykjanesbæjar.
Ábyrgð gagnvart framtíð Reykjanesbæjar.
Margrét Þórarinsdóttir,
bæjarfulltrúi.
Skipar 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins








