Aðalbros
Aðalbros

Aðsent

Jöfnuður, framfarir og farsæld
Þriðjudagur 28. apríl 2026 kl. 10:34

Jöfnuður, framfarir og farsæld

Um dagana hef ég víða komið við, eins og títt er „um unga menn á öllum aldri“. Má þar nefna verkamannastörf á uppvaxtarárum, s.s. saltfiskverkun og beitingu. Síðar sjómennsku á togurum, loðnuskipi og handfæraveiðar. Meðfram háskólanámi stundaði ég sjómennsku, blaðamennsku, útvarpsþáttagerð, kennslu í eðlis- og efnafræði við Iðnskólann í Reykjavík, svo fátt eitt sé nefnt. Kennari í sömu greinum við Fjölbrautarskólann í Breiðholti til nokkurra ára. Eftir embættispróf í guðfræði var ég sóknarprestur á Höfn í Hornafirði, í Útskálaprestakalli í afleysingu og til síðustu 25 ára á Breiðabólstað í Fljótshlíð. Fyrsti varaþingmaður Samfylkingarinn fyrir Suðurkjördæmi 2003-2007. Vara- og aðalbæjarfulltrúi. Samfylkingarinnar og óháðra í Suðurnesjabæ 2022-2026.

Þegar ég lét af embætti í Rangárþingi þurfti ég að líta til beggja átta með framtíðarbúsetu í huga. Stór-Reykjavíkursvæðið kom ekki til greina og ég taldi Rangæinga vera búna að fá nóg af mér. Hins vegar leið mér afar vel hér á Reykjanesskaganum meðal þess góða fólks sem hér bjó þegar ég þjónaði Sandgerði og Garði og ákvað því að festa hér kaup á húsnæði til ævibúsetu. Eftir því hef ég ekki séð, sama góða fólkið á hverju strái sem áður, þjónusta við eldri borgara framúrskarandi og ekki skemmir fyrir að hafa einhverja bestu golfvelli landsins til beggja handa, nánast í göngufæri og einn alþjóðaflugvöll í túnfætinum. Reyjavík úr áreitisfjarlægð, en tekur örskots stund að renna þangað í áreitið ef nauðsyn krefur.

Aðalbros
Aðalbros

Suðurnesin eru sérstök perla á heimsvísu. Þau skarta ægifegurð náttúrunnar, ekki síst það svæði sem við byggjum. Strandlengjan með sínum fögru fjörum, hvítum, svörtum og sumum grýttum, gleðja mig ævinlega þegar ég rölti þær á mislygnum dögum. En kirkjustaðirnir tveir, Hvalsnes og Útskálar og umhverfi þeirra, eru í sérstöku dálæti, staðir sem hafa verið íbúum svæðisins helgir um aldir, þrungnir stórbrotinni sögu, sögnum og minningum, staðir þar sem íbúar, liðnir og lifandi hafa átt sínar hástundir lífsins, í sorg og í gleði. Reynir heitinn Sveinsson og Jóhanna Sigurjónsdóttir eiga ótæplegar þakkir skyldar fyrir öll þau handtök og umhyggju sem þau inntu af hendi til fegrunar Hvalsneskirkju og kirkjugarði. Og nú hefur bæjarfélagið lagt í umtalsverðar framkvæmdir í viðhaldi og endurnýjun gamla prestssetursins á Útskálum sem innan tíðar verður tilbúið til notkunar.

En þótt Suðurnesjabær sé til stakrar fyrirmyndar í þjónustu sinni við bæjarbúa og mannlíf allt hið besta, má lengi gott bæta. Hugmyndir mínar þar að lútandi snúa fyrst og fremst að jöfnuði í samfélginu, að öllum sé gert jafn hátt undir höfði til mennta, þjónustu og búsetu. Sífellt er leitað fanga um að bæta hag og þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra, leiða er leitað til að lækka álögur á íbúa, koma betur til móts við þarfir eldri borgara, stuðla að atvinnuuppbyggingu og þar með auknum atvinnutækifærum fyrir íbúa.

Sem gefur að skilja slær hjarta mitt með ungviðinu og öllum þeim sem að umönnun þeirra koma. Málefni eldri borgara eru mér dýrmæt og hugleikin, enda einn af þeim ört vaxandi hópi. Hér í Suðurnesjabæ þarf að ganga frá formlegri og löglegri stofnun eldri borgara sem ásamt öldungaráði bæjarins getur verið bæjaryfirvöldum bæði ráðgefandi og veitt aðhald. Sem afi og eldri borgari mun ég í afskiptum mínum af stjórnun bæjarins halda trausta taki bæði um taum og keyri til að þoka málum til enn betri vegar, bættrar þjónustu og farsælla lífs og tilveru í Suðurnesjabæ, sem boðberi jafnaðar, framfara og farsælda.

Önundur S. Björnsson

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar