Þrír kjörstaðir í Reykjanesbæ
Sveitarstjórnarkosningar 16. maí: Hvar á ég að kjósa?
Sveitarstjórnarkosningarnar 2026 fara fram laugardaginn 16. maí. Í Reykjanesbæ verða þrír kjörstaðir starfræktir að þessu sinni og hefur íbúum verið skipt upp eftir hverfum til að tryggja sem best flæði á kjördag.
Til að gera kjördaginn sem þægilegastan er íbúum bent á að kynna sér vel hvar þeir eiga að neyta atkvæðisréttar síns áður en lagt er af stað.
Kjörstaðir og skipting hverfa
Kjörstaðirnir verða opnir frá kl. 09:00 til 22:00 og skiptast þeir svona:
-
Fjölbrautaskóli Suðurnesja: Fyrir íbúa í Keflavík og Njarðvík.
-
Ráðhús Reykjanesbæjar (Grænásbraut 910): Fyrir íbúa á Ásbrú og í Höfnum.
-
Stapaskóli: Fyrir íbúa í Innri Njarðvík.
Mundu skilríkin!
Kjósendur eru minntir á að hafa gild skilríki (vegabréf, ökuskírteini eða nafnskírteini) meðferðis á kjörstað, en það er skilyrði fyrir því að fá að kjósa.
Hvar er ég á skrá? > Ef þú ert óviss um hvar þú átt að kjósa eða í hvaða kjördeild þú tilheyrir, er auðvelt að fletta því upp á vef Þjóðskrár.








