Hvar búa þau sem ætla að gæta hagsmuna íbúa í Suðurnesjabæ?
Allir oddvitarnir búa í Sandgerði
Framsókn aðeins með tvo frambjóðendur úr Garði
Miðflokkurinn aðeins með fjóra úr Sandgerði
Jöfn skipting hjá D-lista og hallar aðeins á Garðinn hjá Samfylkingu
Framsókn og óháðir í Suðurnesjabæ sækir alla frambjóðendur sína til komandi sveitarstjórnarkosninga, utan tveggja, til Sandgerðis. Af átján frambjóðendum listans búa sextán í Sandgerði og tveir í Garðinum, þeir sem skipa 4. og 13. sæti. Alls eru frambjóðendur úr Sandgerði 40 talsins en 32 úr Garðinum á þeim fjórum listum sem eru í kjöri.
Aðeins eitt framboð, D-listinn og óháðir, er með jafna skiptingu frambjóðenda á milli bæjarhlutanna Garðs og Sandgerðis, níu frambjóðendur frá hvorum bæjarhluta. Hjá Samfylkingu og óháðum hallar aðeins á Garðinn. Þar eru ellefu frambjóðendur úr Sandgerði og sjö úr Garði. Öfugt við Framsóknarflokkinn er Miðflokkurinn með mikinn meirihluta frambjóðenda sinna úr Garði. Af átján frambjóðendum eru fjórtán úr Garði en fjórir úr Sandgerði.
Í fréttinni birtum við níu efstu frambjóðendur hjá hverjum lista en í Suðurnesjabæ er bæjarstjórn skipuð níu bæjarfulltrúum.
Framsókn og óháðir
B-listinn sækir langstærstan hluta síns fólks til Sandgerðis. Oddvitinn Anton Kristinn Guðmundsson leiðir hópinn en hann er búsettur í Sandgerði. Af 18 frambjóðendum búa aðeins tveir í Garðinum. Efsti Garðmaðurinn á listanum skipar 4. sætið. Af níu efstu sætunum eru átta frambjóðendur úr Sandgerði og einn úr Garði.
B-listinn: Framsókn og óháðir
- Anton Kristinn Guðmundsson (Sandgerði)
- Magnús Sigfús Magnússon (Sandgerði)
- Ólöf Ólafsdóttir (Sandgerði)
- Sindri Lars Ómarsson (Garður)
- Ewa Krysztopa (Sandgerði)
- Gísli Jónatan Pálsson (Sandgerði)
- Óskar Helgason (Sandgerði)
- Þórsteina Þöll Árnadóttir (Sandgerði)
- Guðrún Sif Pétursdóttir (Sandgerði)
D-listinn og óháðir
D-listinn og óháðir eru með jafnasta listann þegar horft er til búsetu, en þar er hnífjafnt á milli byggðarlaganna ef litið er til póstnúmera. Oddvitinn Haukur Andreasson býr í Sandgerði. Þrjú næstu sætin eru svo skipuð frambjóðendum úr Garði. Af níu efstu sætunum eru þrír frambjóðendur úr Sandgerði og sex úr Garði.
D-listinn: D-listinn og óháðir
- Haukur Andreasson (Sandgerði)
- Haraldur Helgason (Garður)
- Oddný Kristrún Ásgeirsdóttir (Garður)
- María Kjartansdóttir (Garður)
- Berglind Lára Haraldsdóttir (Sandgerði)
- Margrét Edda Arnardóttir (Garður)
- Fannar Logi Waldorff Sigurðsson (Garður)
- Arnar Geir Gestsson (Sandgerði)
- Sólmundur Ingi Einvarðsson (Garður)
Miðflokkurinn
Af átján frambjóðendum Miðflokksins búa fjórtán í Garði. Oddvitinn Daði Bergþórsson býr þó í Sandgerði.
Þrjú næstu sætin eru úr Garði og síðan má sjá fléttu milli bæjarhluta að níunda sætinu. Af níu efstu sætunum eru fjórir frambjóðendur úr Sandgerði og fimm úr Garði.
M-listinn: Miðflokkurinn
- Daði Bergþórsson (Sandgerði)
- Sigrún Harpa Sigurjónsd. Heide (Garður)
- Erla Jóhannsdóttir (Garður)
- Sigríður Rós Jónatansdóttir (Garður)
- Ólafur Fannar Þórhallsson (Sandgerði)
- Birgitta Sædís Eymundsdóttir (Garður)
- Elmar Aron Gunnarsson (Sandgerði)
- Brynjar Þór Kristinsson (Garður)
- Gréta Ágústsdóttir (Sandgerði)
Samfylkingin og óháðir
Samfylkingin sækir meirihluta síns liðs til Sandgerðis, þar á meðal oddvitann Svavar Grétarsson. Sjö frambjóðendur af átján búa í Garðinum og skipa þeir meðal annars þriðja og fjórða sæti listans. Af níu efstu frambjóðendunum eru sjö úr Sandgerði og tveir úr Garði.
S-listinn: Samfylkingin og óháðir
- Svavar Grétarsson (Sandgerði)
- Bergný Jóna Sævarsdóttir (Sandgerði)
- Egill Rúnar Sigurðsson (Garður)
- Önundur S. Björnsson (Garður)
- Thelma Dís Eggertsdóttir (Sandgerði)
- Bára Kristín Þórisdóttir (Sandgerði)
- Agnes Helgadóttir (Sandgerði)
- Jón Þór Jónsson Hansen (Sandgerði)
- Benóný Þórhallsson (Sandgerði)








