Aðalbros
Aðalbros

Aðsent

Óánægja í Miðhúsum
Sunnudagur 26. apríl 2026 kl. 07:26

Óánægja í Miðhúsum

Félagsstarf eldri borgara í Miðhúsum í Sandgerði, Suðurnesjabæ.

Stórt skarð kom í gott starf eldri borgara í Miðhúsum þegar Líney Baldursdóttir, starfsmaður til 25 ára, var flæmd úr starfi sínu. 

Byrjunin var þegar tvær konur í félagsþjónustunni voru með tillögur um að loka Miðhúsum og flytja starfið í Auðarstofu. Þar var sagt að „blómlegt“ starf væri í Auðarstofu en fátt fólk í Miðhúsum.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Í okkar huga er blómlegt starf mikil og góð vinna sem fólkið vinnur, ekki fjöldinn sem sækir staðinn.

Konurnar í Miðhúsum hafa unnið margs konar góðverk í gegnum árin, eins og armbönd fyrir Krabbameinsfélag Suðurnesja upp á 2 milljónir króna, vettlinga í leikskóla í Njarðvík, gefið prjónaðar flíkur í Konukot og til Hringskvenna 7 stóra kassa, fæðingarteppi, húfur og vettlinga til fæðingardeildar spítalans, teppið sem prýðir Sandgerðiskirkju og helling af prjónuðum böngsum í sjúkrabíla. Langveik börn og félagsþjónustan í Sandgerði fengu peningagjöf ásamt ýmsu öðru. Þær hafa verið duglegar að steikja kleinur til að fjármagna starfið. Er þetta ekki blómlegt starf?

Bréfið fræga átti ekki að komast í okkar hendur en sem betur fer fengum við að sjá það áður en það átti að fara fyrir bæjarstjórn, annars væri sennilega búið að loka Miðhúsum. Ég tek það fram að bréfið kom ekki frá Líneyju. Við fengum það frá ónefndum aðila með tök í pólitíkinni. Þá var fundur í Miðhúsum og okkur tjáð að bréfið færi ekki til bæjarstjórnar og engar breytingar yrðu gerðar á félagsstarfi eldri borgara.

Miðhús og Auðarstofa eru staðir þar sem eldri borgarar koma saman, spila billjard, bingó, fá félagsvist, gera alls konar handavinnu og margt fleira. Fólkið í Miðhúsum hefur þurft að berjast fyrir tilvist sinni síðustu mánuði. Okkur finnst að Miðhús og Auðarstofa eigi að fá að starfa á báðum stöðum með jafn langan opnunartíma og með aðstoðarfólk á báðum stöðum. En nú eru ráðamenn yfir starfi aldraðra búnir að bola aðstoðarmanneskju okkar í Miðhúsum úr starfi þar sem hún hefur unnið fyrir Suðurnesjabæ í 25 ár, án aðfinnslu.

Desember hefur alltaf verið skemmtilegur tími í Miðhúsum. En síðastliðinn desember vorum við skilin eftir í áfalli og höfum ekki náð okkur síðan þar sem Líney var ekki lengur til staðar og engin kom í staðinn. Ein kona var ráðin í yfirmannsstöðu, en sú kona gat ekki aðstoðað í handavinnu og er hún hætt. Við í Miðhúsum vorum sökuð um að taka illa á móti henni en hún átti öll upptök á því sjálf, svo ég segi ekki meira um þann starfsmann.

Líney var kölluð á fund og henni tjáð að starfshlutfall hennar myndi lækka úr 80% niður í 44% og hún ætti að sjá um mat og kaffi. Vinnutíminn myndi þar af leiðandi vera 11:30 til 15:30. Þarna var augljóst að enginn ætti að vera til staðar og aðstoða fólk í handavinnu.

Margar konur eru komnar á efri ár og þurfa þær að sjálfsögðu á aðstoð að halda í sinni vinnu. Líney var boðin og búin að finna handa okkur ný verkefni, aðstoða okkur með allt sem okkur datt í hug að gera, aðstoða við málningarvinnu sem við áttum erfitt með og hvetja okkur áfram. Yfirmenn Suðurnesjabæjar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að koma henni úr starfi.

Við sem sækjum Miðhús erum mjög reið, brotin og skiljum ekki þetta háttarlag. Miðhús eru ekki söm eftir árásir yfirmanna Suðurnesjabæjar. Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar og aðstoðarmaður hans boðuðu fund í Miðhúsum í byrjun janúar og lofuðu þeir að vinna þetta mál fljótt og vel svo allir yrðu ánægðir.

Nú er komið fram í lok apríl og ekkert hefur gerst. Þeir sögðust líka ætla að hafa fólk með sér og ræða við okkur áður en þeir gerðu eitthvað. Þeir hafa ráðið „barnapíur“ til að gæta okkar, opna og loka húsinu en enn er enginn til staðar fyrir okkur í handavinnunni. Minnihlutinn í bæjarstjórn hefur reynt að berjast með okkur en þeir eru bara tveir á móti Sjálfstæðisflokki, Samfylkingu og O-lista, svo það gefur auga leið að þeir komast ekkert áfram bara tveir.

Okkar krafa í Miðhúsum er að fá Líneyju aftur til starfa svo að starfið verði eins blómlegt og það var þegar hún var við störf. Að bola þessum framúrskarandi starfsmanni úr starfi eru miklar breytingar sem okkur var tilkynnt að ekki yrðu gerðar. Það væri hægt að segja miklu meira um þetta mál en það er efni í heila bók.

Unnendur Miðhúsa,

Stefanía Haraldsdóttir

AnnFrí Johannesen

Eðvarð Sigurvin Ólafsson

Anna Eygló Fanndal Skaftadóttir

Egill Grettisson

Halldór Ármannsson

Lilja Karlsdóttir

Björgvin Jensson

Þorbjörg Bragadóttir

Jón Sigurðsson

Helga Jóhannesdóttir

Gylfi Bergmann

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir