Langbest Sumardagurinn fyrsti
Langbest Sumardagurinn fyrsti

Fréttir

Kristján skólameistari FS: „Þessi sífellda barátta er erfið og þreytandi“
Kristján Ásmundsson, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja, segist ekki eiga von á öðru en að hann láti af störfum þrátt fyrir jákvæðari tón frá ráðuneytinu varðandi verknámshluta skólans.
Laugardagur 25. apríl 2026 kl. 12:53

Kristján skólameistari FS: „Þessi sífellda barátta er erfið og þreytandi“

Kristján Ásmundsson, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja, segist ekki eiga von á öðru en að hann láti af störfum þrátt fyrir jákvæðari tón frá ráðuneytinu varðandi verknámshluta skólans en stefnt er að ljúka þeim framkvæmdum árið 2028, fyrr en áætlað var. Hann segir baráttuna snúast um heildarlausn fyrir skólann, en ekki sína persónu, enda sé ástandið í húsnæðismálum bóknámsbrauta og aðstaða starfsfólks algjörlega óviðunandi.

Kristján sagði upp störfum á dögunum til að mótmæla aðstöðuleysi skólans. Þótt ráðuneytið hafi gefið út að flýta eigi úrbótum á verknámshúsnæði um eitt ár, segir Kristján það ekki duga til. Hann leggur áherslu á að skólinn þurfi heildarlausn sem taki einnig á bóknámshlutanum. „Við áttum fund í dag (þriðjudag) með ráðuneytinu sem tók jákvætt í það að hefja hönnun á bóknámshlutanum samhliða framkvæmdum við verknámsbygginguna. Það er mikilvægt svo við séum ekki á upphafsreit með það þegar þeim framkvæmdum lýkur. Við lögðum áherslu á alvarlega stöðu skólans hvað það varðar og við fengum jákvæð viðbrögð við því á fundinum í dag. Engu að síður fengum við að vita að það væri ekki komið loforð um fjármagn til þess. Svona er þessi sífellda barátta sem er erfið og þreytandi. Þess vegna held ég að það sé farsælast að fá nýjan mann í starf skólameistara,“ sagði Kristján og hefur lagt áherslu á hversu staðan í húsnæðismálunum sé slæm, í ljósi aðstæðna á svæðinu með tilheyrandi fjölgun nemenda og vexti á svæðinu.

Gámar og leiguhúsnæði úti í bæ

„Við erum með þrjá gáma fyrir utan skólann og leigjum aðstöðu á tveimur stöðum úti í bæ. Með fjölgun í skólanum koma fleiri kennarar og okkur vantar líka vinnuaðstöðu fyrir þá.“

Aðalbros
Aðalbros

Hann gagnrýnir það verklag að klára eigi verknámshlutann áður en farið sé í að hanna úrbætur fyrir bóknámið en vonar að fundurinn á þriðjudag hafi borið einhvern árangur hvað það varðar. „Þessi barátta er búin að taka fimm til sex ár. Ef við eigum aftur eftir þrjú ár að fara í næstu fimm til sex ára baráttu fyrir því að fá úrbætur, þá gengur það bara ekki. Þá er betra að fá einhvern annan, yngri mann með meiri þolinmæði,“ segir hann.

Vantar heildarsýn og efndir

Kristján segir að þrátt fyrir að þingmenn og ráðamenn sýni málinu skilning í orði, vanti mikið upp á efndir. Hann kallar eftir heildarsýn frekar en að teknir séu út „einhverjir bútar“ til að laga. „Við verðum að sjá eitthvað gerast til þess að trúa því að það sé verið að vinna í þessu af fullu,“ segir hann.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir