Öllum börnum fæddum 2024 boðið leikskólapláss í Reykjanesbæ
Mikilvægur áfangi hefur náðst í leikskólamálum í Reykjanesbæ en öllum börnum sem fædd eru árið 2024 hefur nú verið boðið pláss á leikskólum sveitarfélagsins. Nú er hafin vinna við að greina hvenær hægt verður að hleypa börnum fæddum árið 2025 að.
Á síðasta fundi menntaráðs fór Helgi Arnarson, sviðsstjóri menntasviðs, yfir stöðu innritunar. Meirihluti ráðsins fagnaði þeim árangri að vera búinn að bjóða árgangi 2024 pláss, en staða leikskólamála hefur verið mikið í umræðunni í sveitarfélaginu á undanförnum misserum.
Leikskólafulltrúi og leikskólastjórar vinna nú hörðum höndum að því að rýna í laus pláss til að hægt sé að bjóða börnum fæddum 2025 inngöngu. Niðurstöðu þeirrar greiningar er að vænta í lok aprílmánaðar og mun hún varpa ljósi á hvenær næsti hópur barna getur hafið sína leikskólagöngu.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í ráðinu, þau Harpa Björg Sævarsdóttir og Ríkharður Ibsen, lögðu fram bókun þar sem þau fögnuðu viðbrögðum starfsmanna sveitarfélagsins við þeirri gagnrýni sem uppi hefur verið. Þau lögðu hins vegar áherslu á að verkefnið væri enn mikil áskorun.
„Brýnt er að fylgja þessari vinnu eftir svo við sjáum betri tölfræði og stöðu sem til stendur að kynna í maí,“ segir í bókun fulltrúa D-lista.
Búist er við að nýjar tölur um stöðuna og framhaldið verði kynntar ítarlega í næsta mánuði.







