Langbest fagnar 40 ára afmæli með nýjungum
„Verðum aðeins fínni en þó áfram á viðráðanlegu verði,“ segir Ingólfur Karlsson.
„Er ekki tilvalið að bjóða upp á nýjungar á svona stórum tímamótum. Við vonum að þær falli í kramið hjá viðskiptavinum okkar en við erum að gera mjög spennandi breytingar og nýjungar á matseðlinum okkar sem við tökum í gagnið á sumardaginn fyrsta,“ segir Ingólfur Karlsson, eigandi veitingastaðarins Langbest sem fagnar 40 ára afmæli á þessu ári.
Langbest opnaði á Hafnargötu 62 árið 1986. Matseðill veitingastaðarins hefur verið nánast óbreyttur frá upphafi þar sem aðaláhersla hefur verið lögð á pizzur og létta grillrétti í skyndibitastíl. Eftir að Langbest flutti alla starfsemi sína á Aðaltorg í Reykjanesbæ var tekin upp borðaþjónusta sem hefur kallað á breyttar áherslur í matargerð. „Nú ætlum við að svara því kalli og m.a. bjóða upp á nýja og spennandi „bistró“ rétti sem allir eru handgerðir úr íslensku hráefni í hæsta gæðaflokki. Við munum þó halda áfram að bjóða uppá pizzur og bernaise ásamt okkar geysivinsæla kjúklingasalati sem við höfum reyndar breytt lítillega,“ segir Ingólfur en hann og Helena Guðjónsdóttir, kona hans hafa staðið í brúnni í tæpa þrjá áratugi.
„Þegar við fluttum á Aðaltorg frá Ásbrú fyrir þremur árum vildum við gera einhverjar nýjungar á matseðlinum en ákváðum að fresta því til að einbeita okkur að því sem þurfti að gera við það að byggja nýjan veitingastað á nýjum stað. Við fengum til okkar matreiðslumanninn Kristófer Hugason sem hefur verið í framlínu á nokkrum þekktum veitingastöðum á höfuðborgarsvæðinu og í sameiningu höfum við útbúið marga nýja rétti sem verða á matseðlinum. Við höldum okkar pizzumatseðli og kjúklingasalatinu vinsæla að ógleymdri bernaise-sósunni okkar sem við höfum alltaf lagt mikla vinnu í.“
Meðal nýjunga að sögn Ingólfs verða sex nýir og mjög girnilegir smáréttir og margt fleira. „Við munum bjóða upp á nýja útfærslu á hamborgurum sem verða veglegri en áður, „fiskur og franskar“ verða einnig með breyttu lagi, þorskur í bjórdeigi og alvöru tartarsósa. Þá munum við í fyrsta skipti bjóða upp á lúðu sem mig grunar að verði vinsæl. Nýjar gerðir af Ribey nautasteikum og lambasteikum verða í mjög skemmtilegri útfærslu, sérstaklega hugsaðar til að deila. Svo munum við bjóða upp á æðislega kjötsúpu á nýja matseðlinum. Þetta eru áskoranir fyrir okkur að fara í svona breytingar og nýjungar en við gerum alla okkar rétti frá grunni úr íslensku gæða hráefni. Til að undirstrika að gera eitthvað frá grunni má nefna að við verðum með nýjar franskar kartöflur sem við gerum frá grunni og eftir að hafa boðið nokkrum í smakk er ég bjartsýnn á að viðbrögðin við þeim verði mjög góð.“
Ingólfur segir að á síðustu árum hafi það aukist að hópar hafi komið. Til að mæta því verði boðið upp á sérstaka hópa matseðla. „Þetta eru nokkur þúsund manns á undanförnum árum og alltaf að verða vinsælla að hvers kyns hópar og klúbbar vilji koma og eiga góða stund í mat og drykk.“
„Með þessum breytingum á þessum stóru tímamótum mun gæðastaðall veitingastaðarins hækka. Við verðum aðeins fínni en þó áfram á viðráðanlegu verði. Aðalatriðið er að við munum áfram leggja ást og alúð í þetta,“ segir Ingólfur.




Á myndunum eru nokkrir af nýjum réttum á matseðli Langbest sem tekur gildi á sumardaginn fyrsta. VF/myndir: Hilmar Bragi







