Landhelgisgæslan
Landhelgisgæslan

Aðsent

Menntun er lykillinn að framtíð Reykjanesbæjar
Þriðjudagur 21. apríl 2026 kl. 11:44

Menntun er lykillinn að framtíð Reykjanesbæjar

Menntun er ein mikilvægasta fjárfesting sem samfélag getur gert. Sem kennari hef ég séð með eigin augum hvað það skiptir miklu máli að börn fái stuðning, hvatningu og tækifæri til að vaxa. Skólinn mótar ekki aðeins þekkingu barna heldur líka sjálfstraust þeirra, forvitni og trú á eigin framtíð.

Samfélag í örri þróun

Íbúum Reykjanesbær fjölgar hratt og samfélagið verður sífellt fjölbreyttara. Í skólunum okkar eru börn með ólíkan bakgrunn, mismunandi tungumál og fjölbreyttar þarfir. Slagorð Reykjanesbæjar er „í krafti fjölbreytileikans“ enda lít ég svo á að fjölbreytileiki er styrkur. Fjölbreytt samfélag kallar á skýra sýn og sterkt skólakerfi sem getur mætt þessari þróun.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Við þurfum að grípa fyrr inn í

Vellíðan og farsæld barna þarf að vera í forgrunni í allri stefnumótun. Með lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna höfum við tækifæri til að gera betur. En lög ein og sér duga ekki.

Við þurfum að:

  • efla stoðþjónustu í skólum
  • tryggja raunverulegt samstarf milli skóla, félags- og heilbrigðisþjónustu
  • grípa börn fyrr - áður en vandinn vex

Enginn á að detta á milli kerfa.

Stuðningur við skólasamfélagið

Álag á kennara og starfsfólk er raunverulegt við þurfum að skapa vinnuumhverfi þar sem fagfólk getur blómstrað. Kennarar vilja fyrst og fremst hafa tíma til að sinna nemendum sínum vel. Sterkir skólar byggjast á sterku starfsfólki og öflugum stuðningi við skólasamfélagið frá öllum hagaðilum.

Fjárfestum í framtíðinni

Sterkt skólakerfi er grunnur að sterku samfélagi. Þegar við fjárfestum í menntun erum við að fjárfesta í framtíð Reykjanesbæjar.

Markmið okkar ætti að vera skýrt:
að gera góða skóla enn betri, efla farsæld barna og tryggja að hvert barn fái tækifæri til að njóta sín.

Því þegar börnin okkar fá að blómstra – þá blómstrar samfélagið allt.

Ásta Kristín Guðmundsdóttir
Kennari, verkefnastjóri og markþjálfi
Höfundur skipar 3. sæti á lista Viðreisnar í Reykjanesbæ.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir