Þorbjörn aðalfundir
Þorbjörn aðalfundir

Aðsent

Hlúum að börnunum okkar
Mánudagur 20. apríl 2026 kl. 09:24

Hlúum að börnunum okkar

Sem formaður og meðlimur lýðheilsuráðs Reykjanesbæjar fyrir hönd Framsóknar síðustu fjögur ár höfum við oft setið fundi þar sem sama umræðan kemur upp aftur og aftur, líðan barna og ungmenna og hvernig við getum gert betur.

Það er ekkert flókið að sjá að þörfin er að aukast. Við heyrum það frá fagfólki, ungmennunum sjálfum, sjáum það í gögnum og finnum það í samfélaginu okkar. Fleiri börn og ungmenni eru að glíma við kvíða, svefnvandamál og þá pressu sem fylgir því að alast upp í dag.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Ef við grípum ekki inn í snemma, þá verður vandinn bæði stærri og dýrari seinna. Það er því mikilvægt að efla forvarnir, styrkja þær stoðir og þá innviði sem snúa að þessum hópi, setja kraft og meira fjármagn í þetta núna. Það er heilmikið búið að gera en við þurfum að gera meira. Félagsmiðstöðvar og ungmennahús eru afar mikilvæg fyrir þennan hóp, þangað leita börnin og ungmennin til að hitta aðra og fá stuðning. Það er því mjög mikilvægt er að opnaðar verði félagsmiðstöðvar í öllum grunnskólum sveitarfélagsins og hefur það verið áhersluatriði okkar í Framsókn.

Við höfum talað fyrir símalausum grunnskólum eða að samræma þurfi reglur um notkun þeirra í öllum grunnskólum Reykjanesbæjar. Börnin okkar eiga að fá rými til að einbeita sér og eiga eðlileg samskipti. Við verðum að þora að setja skýr mörk og skapa umhverfi þar sem námið og samskiptin fá að njóta sín, einnig að sýna það í verki að við setjum velferð barna okkar ofar þægindum og tökum ábyrgð á því umhverfi sem við búum þeim.

Ekki má gleyma hlutverki foreldra og forráðafólks, en þar liggur lykillinn að góðu samstarfi. Börnin okkar þurfa að finna að við séum til staðar, fylgjumst með þeim og að við styðjum þau á þeirra forsendum. Þetta snýst ekki um að anda ofan í hálsmálið á þeim heldur um nærveru, mörk og að vera góðar fyrirmyndir þeirra. Samstarf heimilis og skóla skiptir þar máli, þegar við vinnum saman sem eitt samfélag þá náum við betri árangri fyrir börnin okkar.

Bjarney Rún Jensdóttir og Karítas Lára Rafnkelsdóttir,
frambjóðendur Framsóknar í Reykjanesbæ til sveitarstjórnakosninga 16. maí nk.