Útisigur hjá Grindavík í fyrsta leiknum í Njarðvík
Grindavíkurkonur gerðu góða ferð til Njarðvíkur og unnu fyrsta leikinn í einvígi liðanna í undanúrslitum Bónus-deildar kvenna í körfubolta. Lokatölur 81-87 fyrir UMFG.
Sigur þeirra grindvísku var sanngjarn. Þær náðu forystu strax í fyrsta leikhluta og bættu við hana fyrir leiklé en þá leiddi UMFG 44-34.
Heimakonur mættu með látum í þriðja leikhluta og unnu hann með sjö stigum. Í upphafi fjórða leikhluta jöfnuðu þær og komust fimm stigum yfir 67-61 en þær náðu ekki að fylgja því eftir og Grindavík komst aftur yfir 69-71. Þær grindvísku voru sterkari tvær síðustu mínúturnar og tóku fyrsta leikinn og það á útivelli, 0-1.
Farhiya Abdi skoraði mest hjá Grindavík, 24 stig. Isabella Ósk átti sinn besta leik í langan tíma og skilaði 22 stigum í frábærri skotnýtingu, þá tók hún átta fráköst.
Hjá Njarðvík bar tvíeykið, þær Brittany Dinkens (31 stig, 9 fráköst, 9 stoðsendingar) og Danielle Rodrigues (24 stig og 8 fráköst) upp leik liðsins. Þær skoruðu 55 stig af 81.
Njarðvík-Grindavík 81-87 (18-22, 16-22, 24-17, 23-26)
Njarðvík: Brittany Dinkins 31/9 fráköst/9 stoðsendingar, Danielle Victoria Rodriguez 24/8 fráköst, Krista Gló Magnúsdóttir 9, Paulina Hersler 6/7 fráköst, Helena Rafnsdóttir 6, Sara Björk Logadóttir 3, Hulda María Agnarsdóttir 2, Sofia Roma 0/6 fráköst, Helga Jara Bjarnadóttir 0, Inga Lea Ingadóttir 0, Kristín Björk Guðjónsdóttir 0, Eygló Kristín Óskarsdóttir 0.
Grindavík: Farhiya Abdi 24/6 fráköst, Isabella Ósk Sigurðardóttir 22/8 fráköst, Emilie Sofie Hesseldal 13/10 fráköst, Ólöf Rún Óladóttir 10, Abby Claire Beeman 9/8 fráköst/9 stoðsendingar, Ellen Nystrom 6/6 fráköst, Þórey Tea Þorleifsdóttir 3, Telma Hrönn Loftsdóttir 0, Eyrún Hulda Gestsdóttir 0, María Sóldís Eiríksdóttir 0, Ólöf María Bergvinsdóttir 0, Jenný Geirdal Kjartansdóttir 0.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Davíð Kristján Hreiðarsson, Sófus Máni Bender
Áhorfendur: 411
Viðureign: 0-1







