Þorbjörn aðalfundir
Þorbjörn aðalfundir

Fréttir

Bæjarstjórn Grindavíkur boðar til íbúafundar: Forsætisráðherra og Þórkötlu boðið að sitja fyrir svörum
Frá Grindavík. Mynd af vef bæjarins.
Laugardagur 18. apríl 2026 kl. 12:16

Bæjarstjórn Grindavíkur boðar til íbúafundar: Forsætisráðherra og Þórkötlu boðið að sitja fyrir svörum

Bæjarstjórn Grindavíkur hefur boðað til opins íbúafundar miðvikudaginn 22. apríl nk. kl. 16:30 í Gjánni. Á fundinum hyggst bæjarstjórn kynna sýn sína á endurreisnina og leita eftir umboði íbúa til að opna skóla í bænum á ný, en jafnframt hefur verið óskað eftir nærveru forsætisráðherra og fulltrúa Fasteignafélagsins Þórkötlu.

Í tilkynningu frá bæjarstjórn kemur fram að Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, hafi verið boðið að ávarpa fundinn og greina frá afstöðu ríkisstjórnarinnar til endurreisnar Grindavíkur. Bæjarbúar bíða margir eftir skýrum svörum um næstu skref ríkisvaldsins.

Óska eftir svörum frá Þórkötlu

Bæjarstjórn hefur einnig boðið fulltrúa Fasteignafélagsins Þórkötlu til fundarins til að kynna endurkaupaáætlun félagsins. Í tilkynningunni er lögð rík áhersla á mikilvægi þess að þessar áætlanir líti dagsins ljós sem fyrst. Með því fengju Grindvíkingar nauðsynlegt yfirlit yfir þá valkosti sem eru í boði svo þeir geti tekið upplýstar ákvarðanir um framtíð sína og búsetu.

Nesraf
Nesraf
Leita eftir umboði fyrir skólastarf

Bæjarfulltrúar munu á fundinum kynna eigin sýn á endurreisnina. Þar mun bæjarstjórn leita eftir stuðningi og umboði bæjarbúa til að hefja skólastarf í Grindavík strax á komandi hausti, en það er talið lykilatriði í því að glæða samfélagið lífi á ný.

Þingmenn kjördæmisins boðaðir

Öllum þingmönnum Suðurkjördæmis hefur verið boðið á fundinn og er þess vænst að þar komi fram afstaða hvers flokks fyrir sig til uppbyggingar og endurreisnar bæjarins. Meðal þeirra þingmanna sem boð hafa fengið eru:

  • Guðrún Hafsteinsdóttir og Vilhjálmur Árnason (Sjálfstæðisflokkur)

  • Sigurður Ingi Jóhannsson og Halla Hrund Logadóttir (Framsóknarflokkur)

  • Víðir Reynisson og Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Samfylkingin)

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttir og Sigurður Helgi Pálmason (Flokkur fólksins)

  • Karl Gauti Hjaltason (Miðflokkurinn)

  • Sandra Sigurðardóttir (Viðreisn)

Bæjarstjórn hvetur Grindvíkinga til að fjölmenna í Gjána, taka þátt í samtalinu og sýna samstöðu á þessum mikilvægu tímamótum.


Upplýsingar um fundinn:

  • Tími: Miðvikudaginn 22. apríl kl. 16:30.

  • Staður: Gjánni, íþróttamiðstöð Grindavíkur.