Þorbjörn aðalfundir
Þorbjörn aðalfundir

Aðsent

Fjármál Reykjanesbæjar bera skýr merki árangurs og ábyrgrar stjórnunar 
Föstudagur 17. apríl 2026 kl. 19:33

Fjármál Reykjanesbæjar bera skýr merki árangurs og ábyrgrar stjórnunar 

Frá árinu 2014 hefur rekstur bæjarsjóðs skilað um 11 milljörðum króna jákvæðri niðurstöðu og samstæðan alls 18,4 milljörðum. Á sama tíma hefur skuldaviðmið samstæðunnar lækkað verulega, úr 232% í 105,6%. Þetta eru staðreyndir sem liggja fyrir í ársreikningum og sýna markvissa fjármálastjórn til lengri tíma. 

Árangurinn endurspeglast í innviðum sem bæjarbúar nýta daglega. Á tímabilinu hefur Reykjanesbær byggt nýjan grunnskóla, fjóra leikskóla, keppnisíþróttahús, opnað nýja sundlaug og endurbyggt tvo grunnskóla nánast frá grunni svo eitthvað sé nefnt. Heildarfjárfestingar nema 23 milljörðum króna, þar af  eru 17 milljarðar sem fjármagnaðir voru með eigin fé, eða 74%, tölurnar tala sínu máli.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Á sama tíma hefur rekstrinum verið haldið í jafnvægi. Launakostnaður sem hlutfall af heildarútgjöldum var 47,4% árið 2014 og er 47,1% árið 2025, þrátt fyrir aukin verkefni, meiri þjónustu og 64% fjölgun íbúa. Traust og ábyrg fjármálastjórn sveitarfélags eins og Reykjanesbæjar er lykilforsenda stöðugleika, velferðar og sjálfbærrar þróunar til lengri tíma. Þegar horft er til áherslna Framsóknar í efnahagsmálum má skýrt sjá að sama grunnsýn á við á sveitarstjórnarstigi. Aðhald, fyrirsjáanleiki og hófsemi eru lykilatriði í að tryggja jafnvægi í hagkerfinu og verja lífskjör íbúa. 

Þetta sýnir að hægt er að byggja upp, fjárfesta og þjónusta ört stækkandi samfélag án þess að missa stjórn á rekstrinum. Grunnurinn er orðinn traustur og skapar svigrúm til áframhaldandi uppbyggingar og forgangsröðunar til framtíðar. 

Þakkir til íbúa, stjórnenda og starfsfólks  

Í ljósi þessarar stöðu og staðreynda er það hrein og klár móðgun við íbúa og starfsfólk bæjarfélagsins þegar snúið er út úr og reynt að gera góða stöðu tortryggilega. Nær væri að þakka íbúum, stjórnendum og starfsfólki sem hafa unnið markvisst að uppbyggingu sveitarfélagsins við krefjandi aðstæður á liðnum árum fyrir vel unnin störf. Það vil ég gera enda eiga margir heiðurinn af þessum árangri. Ég er stolt af Reykjanesbæ, seiglu íbúanna og þeim viðsnúningi sem orðið hefur. En við erum ekki hætt. Mikilvægt er að halda fast um taumana áfram og varast loforðaflaum þeirra sem vilja rasa um ráð fram. Samfélagið í Reykjanesbæ stendur á traustum fjárhagslegum grunni og það er okkar að gæta þess að honum verði ekki haggað.  

Hallóra Fríða Þorvaldsdóttir,
verkefnastjóri og oddviti Framsóknar í Reykjanesbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar 16. maí næstkomandi.