Öfugsnúinn stuðningur Reykjanesbæjar við félagsstarf
Undanfarin tæplega 30 ár hefur undirritaður séð um fjármál KFUM og KFUK í Reykjanesbæ. Á þessum tæpu 30 árum og lengur, að ég þykist vita, hefur félagið ekki þurft að greiða fasteignagjöld til bæjarfélagsins heldur hefur bæjarfélagið, að ég taldi, styrkt félagið mitt og mörg önnur með því að rukka ekki gjöldin. En nú er væntanlega orðið heldur þröngt í búi hjá bæjarfélaginu og ákveðið er að rukka fráveitugjöld og lóðarleigu – þar sem bæjarfélagið á landið – hjá ýmsum félagssamtökum sem almennt vinna í mikilli sjálfboðavinnu samfélaginu til heilla.
Þetta eru félög eins og KFUM og KFUK, skátafélagið, Rauði krossinn og fleiri sambærileg félög. Reykjanesbær auglýsti í vetur að hægt væri að sækja um styrk til greiðslu fasteignaskatts og hefur bæjarfélagið sérstakar reglur um veitingu slíkra styrkja, m.a. skulu félög og félagasamtök reka starfsemi í eigin húsnæði eða leiguhúsnæði í Reykjanesbæ, vera með lögheimili í bæjarfélaginu, félagið má ekki reka í ágóðaskyni og fleira. Gott og vel, ég sótti um fyrir hönd félagsins míns og fékk gott svar um að umsókn félagsins um styrk vegna fasteignaskatts væri samþykkt, þá hélt ég að málið væri dautt þetta árið. Fáeinum dögum síðar kom hins vegar tölvupóstur þar sem vakin var athygli á því að styrkurinn næði eingöngu til fasteignaskatts en ekki til fráveitugjalda og lóðarleigu. Fyrir okkur í KFUM og KFUK þýðir þetta að við eigum að greiða bæjarfélaginu um 223 þúsund krónur. Til skýringar þá stendur félagsheimili okkar við Hátún á landi bæjarfélagsins. Ýmis önnur félög, svo sem skátafélagið og Rauði krossinn, eru á landi annarra en Reykjanesbæjar og greiða lóðarleigu til landeiganda en ekki til bæjarfélagsins. KFUM og KFUK hefur undanfarin ár fengið styrk frá bæjarfélaginu til rekstur félagsins hér í bæ upp á 1.500.000 auk fasteignagjalda (fasteignaskattur, fráveitugjald og lóðarleiga). Nú ákveður bæjarfélagið mitt að fá um 15% af þessum styrk til baka. Kaldar kveðjur finnst mér. Ég, þverhausinn sem ég get verið, kann ekki vel við þessa niðurstöðu hvorki fyrir hönd KFUM og KFUK né annarra félaga sem mörg leggja mikið til samfélagsins á svæðinu með góðu starfi, að langmestu leyti í sjálfboðavinnu.
Blessunarlega býr íþróttahreyfingin við það að þurfa í flestum tilfellum ekki að greiða þessi gjöld vegna þess að bæjarfélagið á langflest þau húsnæði sem notuð eru fyrir starfsemi íþróttafélaga. Upplýsandi væri þó að vita hvort einhver pólitískur fulltrúi vilji heimsækja eitthvað íþróttafélag í bænum og leggja til að almennir styrkir til félagsins verði lækkaðir svolítið því bæjarfélagið þurfi að greiða fráveitugjöld og lóðarleigu vegna húsnæðisins.
Ég skrifaðist lítillega á við bæjarstarfsmenn vegna þessa og var að leita að því hvort þetta ætti virkilega að vera svona, ekki yrði veittur styrkur þetta árið á móti þessum gjöldum. Svarið var að svona skyldi þetta vera. Ég fór þá næst í bæjarstjórnarmann sem taldi þessa útfærslu ekki góða og að þetta yrði væntanlega leiðrétt. Fékk hins vegar símtal frá þeim ágæta manni í dag með þeim skilaboðum að þessu yrði ekki breytt þetta árið.
Tillaga mín til pólitískt kjörinna fulltrúa er að bæjarfélagið setji upp heildstæða styrkjastefnu varðandi félagsstarfsemi sem byggir að mestu á sjálfboðastarfi og er ekki rekin í ágóðaskyni, þá kannski sérstaklega fyrir þau sem að stórum hluta vinna með og fyrir börn og ungmenni. Bæjarfélagið styrki félögin um einhverja upphæð óháð starfsemi og fleiru til almenns reksturs auk þess að bæjarfélagið styrki félögin um þessi opinberu gjöld svo sem fasteignaskatt, fráveitugjald og lóðarleigukostnað, óháð því hvert lóðarleiga er greidd.
Annars gæti verið gaman að fá að heyra næsta símtal til Rauða krossins þegar upp kemur neyðarástand á svæðinu. Væntanlega kemur símtalið frá aðgerðastjórn almannavarna sem vinnur á einhvern hátt í samvinnu og/eða í umboði bæjarfélagsins. Símtalið gæti verið: Heyrðu vinur, það er neyðarástand inni á Reykjanesbraut og það þarf að loka henni. Gætuð þið ekki opnað fjöldahjálparstöðina. Ég ætla svo að minna ykkur í leiðinni á að gleyma ekki að greiða fráveitugjaldið.
Sveinn Valdimarsson,
KFUM-drengur. [email protected]
Ps. Ef Reykjanesbæ munar verulega um þær fjárhæðir sem hann yrði af með því að styrkja umrædd félög skal ég gjarnan koma með nokkrar tillögur til pólitíkusa um mótvægisaðgerðir.




