Frumkvæði skapar framtíð
Við hjá D-listanum og óháðum í Suðurnesjabæ trúum því að frumkvæði skapi framtíð.
Öflug byggðaþróun byggir á sterku atvinnulífi og skýrri forystu sveitarfélagsins. Við viljum að Suðurnesjabær sé sveitarfélag sem tekur frumkvæði og skapar tækifæri. Með markvissri stefnu í skipulagsmálum, þjónustu og nýsköpun ætlum við að laða að fyrirtæki, efla atvinnulíf og styrkja tekjugrunn bæjarins til framtíðar.
Við leggjum áherslu á jákvætt og virkt samstarf við atvinnulífið þar sem frumkvæði, fagmennska og þjónusta eru í forgrunni. Samhliða því viljum við byggja upp öflugt mannlíf – með áherslu á menningu, æskulýðsstarf, íþróttir og skipulag nýrra íbúðarsvæða sem mæta þörfum framtíðar.
Frumkvæði okkar snýr einnig að umhverfismálum. Í dag leggja heimilin sitt af mörkum með flokkun sorps en stór hluti þess er fluttur úr landi til brennslu, með tilheyrandi kostnaði og kolefnisspori. Við viljum breyta því.
Því munum við beita okkur fyrir því að hefja viðræður um að uppbygging sorpbrennslustöðvar skuli fara í Bergvík. Með því tökum við ábyrgð á okkar eigin úrgangi, drögum úr umhverfisáhrifum og sköpum um leið ný störf og ný tækifæri fyrir auknar tekjur fyrir sveitarfélagið.
Þetta er raunverulegt frumkvæði – sem styrkir bæði umhverfið og efnahag bæjarins.
Að setja X við D er val um skýra sýn, ábyrgð og árangur.
Val um framtíð sem við sköpum saman.
Haukur Andreasson, lögfræðingur og fasteignasali hjá Allt fasteignasölu
Haraldur Helgason, teymisstjóri veitingaþjónustu LSH
Oddný Kristrún Ásgeirsdóttir, verkefnastjóri Ferðaþjónustu Reykjaness
María Kjartansdóttir, Msc verkfræðingur og verkefnastjóri framkvæmda hjá Isavia
Berglind Lára Haraldsdóttir, deildarstjóri Leikskólans Grænaborg




