Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Sögulegt magn kviku undir Svartsengi: Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin
Frá síðasta gosi á Sundhnúksgígaröðinni. VF/ Ísak Atli Finnbogason
Þriðjudagur 14. apríl 2026 kl. 15:02

Sögulegt magn kviku undir Svartsengi: Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin

Landris og kvikusöfnun halda áfram af krafti undir Svartsengi. Samkvæmt nýjustu gögnum Veðurstofunnar hafa nú safnast um 25 milljón rúmmetrar af kviku í hólfið, sem er mesta magn sem mælst hefur frá því að eldgosahrinan á Sundhnúksgígaröðinni hófst. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands.

Þrátt fyrir að innstreymi kviku sé hægt er það stöðugt. Þetta mikla magn hefur safnast upp frá því síðasta gosi lauk í júlí á síðasta ári. Sérfræðingar telja að eftir því sem þrýstingur eykst í kerfinu aukist líkurnar á nýju kvikuhlaupi sem gæti brotið sér leið upp á yfirborðið.

Nesraf
Nesraf
Stuttur fyrirvari ef til goss kemur

Líklegasta sviðsmyndin er sögð vera sú sama og áður: Að kvika hlaupi frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina. Almenningur er varaður við því að fyrirvari slíkra atburða geti verið mjög stuttur.

„Gera þarf ráð fyrir stuttum fyrirvara, líkt og áður, en hann hefur verið á bilinu 20 mínútur upp í rúmar fjórar klukkustundir,“ segir í uppfærslu Veðurstofunnar.

Óvenjuleg virkni við Fagradalsfjall

Jarðskjálftavirkni á svæðinu hefur almennt verið lítil undanfarnar vikur, eða um tveir smáskjálftar á dag. Athygli vakti þó að í gær, 13. apríl, mældust þrettán smáskjálftar á um 10 kílómetra dýpi undir Fagradalsfjalli. Þetta eru talsvert fleiri skjálftar en sést hafa þar síðustu mánuði, þar sem daglegir skjálftar hafa yfirleitt ekki farið yfir þrjá.

Hættumat óbreytt fram í júní

Hættumat Veðurstofunnar hefur ekki tekið breytingum og gildir óbreytt til 30. júní næstkomandi, nema staðan á svæðinu breytist skyndilega. Sólarhringsvakt fylgist náið með öllum aflögunarmælingum og skjálftavirkni til að bregðast við ef kvika fer á hreyfingu.