HSS er burðarás í öryggi og velferð íbúa
— segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra á ársfundi HSS
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) stendur sterkt og gegnir lykilhlutverki í að tryggja grunnstoðir samfélagsins að sögn Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra. Í ávarpi sínu á ársfundi stofnunarinnar boðaði hún mikla uppbyggingu hjúkrunarrýma, nýja heilsugæslu og bætta aðstöðu fyrir sjúkrabíla.
Alma gat þess í upphafi að starfsemi HSS endurspeglaði vel stefnu stjórnvalda um að færa þjónustuna nær fólkinu og byggja upp sjálfbært kerfi. Hún hrósaði stofnuninni sérstaklega fyrir fagmennsku og viðbragðsflýti, ekki síst í ljósi þeirra áskorana sem fylgt hafa eldsumbrotum á Reykjanesi.
Ráðherra vakti athygli á því að í nýlegri þjónustukönnun ríkisins mældist heildaránægja með þjónustu HSS 4,5 stig af 5 mögulegum.
„Í samanburði við aðrar heilbrigðisstofnanir má sjá að HSS deilir annaðhvort hæstu einkunn eða næsthæstu einkunn,“ sagði Alma og óskaði starfsfólki og stjórnendum til hamingju með þann góða árangur.
Eitt stærsta verkefnið fram undan er uppbygging hjúkrunarrýma á Suðurnesjum. Alma staðfesti að unnið væri að því að HSS tæki að sér rekstur 90 rýma hjúkrunarheimilis á Ásbrú, sem stefnt er að því að opni snemma árs 2028.
Varðandi leigusamninginn, sem margir hafa beðið eftir, sagði hún: „Ég veit þið eruð orðin langeyg eftir að leigusamningur verði undirritaður. Það er á borði félagsmálaráðherra, ég ýti þar á eftir og mér er sagt að málið verði tilbúið á allra næstu dögum.“
Sem bráðabirgðalausn mun HSS taka að sér rekstur Hlévangs strax í sumar, en 100 milljónum króna verður varið í nauðsynlegar endurbætur á húsnæðinu.
Ráðherra fór yfir fleiri spennandi verkefni sem eru í farvatninu:
- Geðheilbrigðisþjónusta: Forathugun vegna húsnæðis fyrir heimahjúkrun og sálfélagslega þjónustu er á lokametrunum og verður auglýst eftir húsnæði á næstu vikum.
- Ný heilsugæsla: Hefja á að nýju mat á þörf fyrir nýja heilsugæslu á svæðinu.
- Sjúkrabílaskýli: Unnið er að fjármögnun á nýju sjúkrabílaskýli sem verður í viðbyggingu við bráðamóttöku og D-álmu sjúkrahússins.
Alma þakkaði HSS sérstaklega fyrir að svara kallinu og taka á móti sjúklingum af Landspítala sem lokið hafa meðferð en bíða eftir hjúkrunarrými.
„HSS á sannarlega skilið þakkir og hrós. Stofnunin hefur verið í fararbroddi í að sinna þessu viðbragði,“ sagði Alma að lokum og lagði áherslu á að seigla og metnaður starfsfólksins væri lykillinn að því að öryggistilfinning íbúa á Suðurnesjum væri tryggð á viðsjárverðum tímum.




