Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Íþróttir

Jón Ólafur og Hörður fengu Gullheiðursmerki Keflavíkur
Hörður t.v. og Jón Ólafur fyrir framan minningarplattann á íþróttasvæði Keflavíkur.
Miðvikudagur 15. apríl 2026 kl. 06:58

Jón Ólafur og Hörður fengu Gullheiðursmerki Keflavíkur

Á aðalfundi Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags var þeim Jóni Ólafi Jónssyni og Herði Ragnarssyni veitt Gullheiðursmerki Keflavíkur fyrir þeirra störf í þágu félagsins. Þeir voru leikmenn Keflavíkur á gullaldarárum knattspyrnunnar, sinntu stjórnarsetu í stjórnum KFK og UMFK ásamt því að vera skoðunarmenn reikninga aðalstjórnar sl. 32 ár og eru enn að.

Við sama tækifæri afhjúpuðu þeir Hörður og Jón Ólafur minningarplatta um gullheiðurshafa Keflavíkur sem staðsettur er á stuðlabergi fyrir utan anddyri íþróttahússins.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Á fundinum kom fram að umfang íþrótta innan Keflavíkur sé gríðarlegt. Á árinu 2025 voru haldnir rúmlega 13.000 viðburðir/leikir í yngri flokkum hjá félaginu og hjá félaginu eru yfir  100 þjálfarar að störfum.

Aðrar heiðursveitingar:

Eva Björk Sveinsdóttir fékk afhentan blómvönd fyrir störf sín fyrir fimleikadeildina árin 2004 – 2010 og aðalstjórn árin 2017 – 2026. Eva Björk lætur nú af störfum fyrir aðalstjórn. Eva Björk fékk Gullstarfsmerki Keflavíkur fyrir 15 ára störf sín á síðasta aðalfundi.

Starfsbikar Keflavíkur hlaut Magnús Jensson fyrir óeigingjarnt starf fyrir félagið.

Sifurheiðursmerki Keflavíkur fengu Örn Garðarsson og Íris Guðjónsdóttir eigendur Soho og Magnús Þórisson og Ólafía Marelsdóttir eigendur Réttarins fyrir ómetanlega stuðning og aðstoð í þágu félagsins í fjölda mörg ár.