Sterkt og sjálfbært félag í efstu deild
segir Jónas Guðni, nýr yfirmaður knattspyrnumála í Keflavík.
Jónas Guðni Sævarsson er einn af dáðu sonum Keflavíkur. Einn af þeim sem ólust þar upp og lyftu bikurum fyrir félagið á Laugardalsvelli. Hann er eins mikið innvinklaður í fótbolta í Keflavík og hugsast getur. Horfði á og spilaði með mörgum af bestu leikmönnum félagsins frá upphafi. Farsæll sem leikmaður, fyrirliði og síðar framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar, eins sem hann starfaði við að slá og viðhalda HS Orku vellinum sem ungur maður. Þar þekkir hann bókstaflega hvert strá. Börnin hans æfa nú og leika með Keflavík á sama tíma og hann tekur við starfi sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Keflavík.
„Þetta leggst vel í mig enda ákveðin forréttindi að fá tækifæri til þess að starfa í kringum íþróttir og þá sérstaklega fyrir uppeldisfélagið sitt. Ég er spenntur fyrir að kynna mér betur það faglega starf sem hefur verið unnið á undanförnum árum. Ég tel mig þó þekkja félagið vel eftir að hafa verið framkvæmdastjóri knattspyrnudeildarinnar í nokkur ár,“ segir Jónas sem hittir fyrir fyrrverandi samstarfsfélaga sinn Ragnar Aron Ragnarsson, framkvæmdastjóra, en þeir störfuðu saman í viðhaldi á vellinum á yngri árum.
Breyta munstri
Jónas tekur við keflinu af Luka Jagacic sem hefur gegnt hlutverkinu frá árinu 2022. Jónas er þeirrar skoðunar að Keflavík eigi heima í efstu deild bæði í karla- og kvennabolta. Þar hefur Keflavík oftast verið. Gengið hefur þó verið brokkgengt undanfarin ár og samhliða því mætti kannski segja að orðspor fótboltans hafi örlítið laskast í Keflavík. Jónas er með ákveðnar hugmyndir um hvernig megi breyta þessu mynstri.
„Undanfarin 10-15 ár höfum við verið að flakka með liðin okkar upp og niður úr efstu deild. Metnaðurinn og viljinn er að hafa bæði liðin í efstu deild en því miður hefur fjárhagsstaðan, umgjörðin og aðstaðan í kringum félagið ekki verið í samræmi við þær væntingar. Þau ár sem við höfum verið með meistaraflokkana okkar í efstu deild hefur reksturinn orðið mjög krefjandi, sem hefur haft áhrif á umgjörðina og stemninguna í kringum félagið. Þessu verðum við að breyta og myndi ég vilja að áherslan og helstu verkefni næstu árin væru að taka skrefin sem þarf til að gera Keflavík að sterku, sjálfbæru efstu deildar félagi. Ég mun leggja mig allan fram við þessi mál í samvinnu við alla sem vilja sjá félagið á þeim stað.“
Dugar ekki bara að elska félagið
Þáttur í að gera þetta að veruleika er að ala upp eigin leikmenn sem koma með DNA félagsins upp í meistaraflokkana. Þegar árangur hefur náðst þá hefur kjarninn í liðunum alltaf verið úr yngri flokka starfinu og nærsamfélaginu.
„Það er afar mikilvægt fyrir okkur að fá leikmenn upp í gegnum yngri flokka starfið enda hefur það sýnt sig í gegnum söguna að þegar Keflavík hefur náð virkilega góðum árangri þá hafa uppaldnir leikmenn með Keflavíkurhjarta verið kjarninn í liðinu. En í dag dugar ekki aðeins að leikmenn elski félagið, við verðum að skapa aðstæður þar sem efnilegir leikmenn vilja vera áfram hjá okkur og finna hér framtíðarmöguleika frekar en að leita annað. Það er eitt af þessum stóru verkefnum sem við þurfum að vinna markvisst að,“ segir Jónas að lokum.
Viðtal: Eyþór Sæmundsson. Mynd/hilmarbragi.
Jónas og Ragnar á HS Orku vellinum.







