Nesraf
Nesraf

Íþróttir

Grindvíkingar sendu Njarðvíkinga í sumarfrí
Pargo sýndi oft NBA tilþrif gegn Njarðvík. VF/pket.
Þriðjudagur 14. apríl 2026 kl. 21:53

Grindvíkingar sendu Njarðvíkinga í sumarfrí

Njarðvíkingar eru komnir í sumarfrí en Grindvíkingar í undanúrslit í Bónus-deild karla í körfubolta. Grindvíkingar unnu þriðja leikinn í röð í spennandi viðureign í IceMar höllinni. Lokatölur 84-91 og viðureignin 3-1 fyrir UMFG.

Heimamenn byrjuðu leikinn vel og leiddu með ellefu stigum eftir fyrsta leikhluta 28-17.

Grindvíkingar svöruðu fyrir sig í öðrum leikhluta þar sem Óli Óla dúndraði niður þristum og tóku hann með þrettán stigum. Staðan í leikhlé 39-43.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Seinni hálfleikur var síðan allur mjög jafn þó Grindvíkingar væru alltaf aðeins á undan. Njarðvíkingar minnkuðu muninn í tvö stig þegar tvær mínútur voru eftir. Á lokakaflanum voru gestirnir úr Grindavík sterkari þar sem heimamenn hittu ekki nógu vel þegar þeir höfðu tækifæri til að minnka muninn og freista þess að ná sigri eða framlengingu. Framlag bestu manna Grindvíkinga eins og Pargo var betra en bestu manna Njarðvíkinga. Þar var munurinn í lokin. 

Njarðvíkingar eru því komnir í sumarfrí. Þeir voru í neðsta sætinu í 8-liða úrslitunum en gáfu efsta liðinu, deildarmeisturum Grindavíkur góða viðureign.

Dwayne Lautier-Ogunleye var stigahæstur hjá UMFN með 21 stig, Sven Smajlagic var með 17 og Milka með 16.

Hjá UMFG skoraði Jordan Semple 23 stig, Jermy Pargo var með 19 stig og Ólafur Ólafs 15.

Grindvíkingar fá Keflavík eða Val í undanúrslitum.

Grindvíkingar voru vel studdir af sínu fólki.