Þorbjörn aðalfundir
Þorbjörn aðalfundir

Íþróttir

Keflvíkingar töpuðu fyrir Fram
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 18. apríl 2026 kl. 09:57

Keflvíkingar töpuðu fyrir Fram

Keflvíkingar eru án stiga eftir tvo fyrstu leikina í Bestu-deild karla í knattspyrnu en þeir töpuðu fyrir Fram á útivelli í gær 3-1.

Keflvíkingar, sem lék vel gegn KR í fyrsta leiknum voru langt frá sínu besta. Framarar komust yfir 1-0 á 11. mínútu og bætti öðru marki við á 49. mín. Keflvíkingar svöruðu á 77. mínútu með marki Eiðs Orra Ragnarssonar eftir undirbúning Alghoul bræðranna.

Keflvíkingar náðu ekki að jafna í lokin heldur voru það heimamenn sem bættu við marki og lokatölur því 3-1 fyrir Fram.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Keflavík er ásamt KA án stiga eftir tvo leiki en FH, ÍA og ÍBV eru með eitt stig.

Keflavík leikur sinn fyrsta heimaleik næsta miðvikudag 22. apríl en þá mætir Breiðablik í heimsókn.