Dómgæslan er lífsstíll
Sigmundur Már Herbertsson var kjörinn besti dómari ársins í Bónus-deildinni í körfubolta 2025-20265. Þetta var í 17. skipti sem hann fær þessa flottu nafnbót. Simmi eins og hann er jafnan kallaður er borinn og bjarnfæddur Njarðvíkingur og starfar í Njarðvíkurskóla.
Nafn: Sigmundur Már Herbertsson
Árgangur: Fæddur 1. ágúst 1968
Búseta: Njarðvík
Hverra manna ertu og hvar uppalin(n)? Foreldrar mínir eru Margrét S. Karlsdóttir ljósmóðir og Herbert S. Svavarsson húsasmíðameistari sem eru bæði fallin frá. Ég er uppalinn á Holtsgötu 41 í Njarðvík.
Starf/nám: Umsjónarmaður fasteigna Njarðvíkurskóla og körfuboltadómari.
Hvað er í deiglunni: Úrslitakeppnin í körfubolta sem er nú þegar hafin og það er alltaf skemmtilegur en krefjandi tími.
Hvernig nemandi varstu? Var örugglega frekar krefjandi nemandi sem hafði of mikið til málanna að leggja. Það var ekki alltaf tengt námsefninu.
Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? Í biðtímanum sem var eftir kirkjuna og þar til veislan hófst horfði ég á Halloween-myndina með Svavari stóra bróður. Veit ekki hversu gott það var fyrir mig?
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Smiður eins og pabbi.
Áttu einhverja sérstaka fyrirmynd? Foreldrar mínir.
Hvert var uppáhalds leikfangið þitt þegar þú varst krakki? Var mest í körfubolta og fótbolta.
Besti ilmurinn? Lyktin af fyrsta kaffibolla dagsins.
Á hvernig bíl lærðir þú fyrir bílprófið? Man það ekki en man að ég þurfti bara að fara í fjóra ökutíma.
Á hvaða bíl fórstu fyrsta rúntinn eftir prófið og með hverjum? Bíl foreldra minna og með vinum mínum.
Hvernig slakarðu á? Fara í heita pottinn.
Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu? Horfi mikið á íþróttaútsendingar og allt sem tengist körfubolta.
Uppáhaldsvefsíða? Körfufréttir sem er app og þar get ég séð allar fréttir um körfubolta.
Hvað heldurðu að skjátími þinn sé mikill á hverjum degi að jafnaði? Um 3 klst.
Besta bíómyndin? Englar alheimsins.
Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á? Á erfitt með að gera upp á milli Michael Jordan og Kobe Bryant.
Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? Ryksuga og geri gæða rækjusalat.
Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? Ég myndi segja Carpaccio sem ég geri og svo má líka nefna heita rúllutertubrauðið.
Hættulegasta helgarnammið? Smash.
Hvernig er eggið best? Linsoðið.
Hvað fer mest í taugarnar á þér? Á það til að pirrast oft í umferðinni.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Óstundvísi.
Uppáhalds málsháttur eða tilvitnun? Dæmdu aldrei í reiði. Reiðin rennur hjá en dómurinn stendur eftir.
Hver er elsta minningin sem þú átt? Pabbi að smíða í bílskúrnum og ég að sniglast í kringum hann.
Þú vaknar einn morgun í líkama frægrar manneskju og þarft að dúsa þar einn dag. Hver værirðu til í að vera og hvað myndirðu gera? Fá að vera NBA-dómari og dæma leik í lokaúrslitum.
Hver er uppáhalds bókin þín og rithöfundur? Ég les mikið bækur eftir Lee Child.
Orð eða frasi sem þú notar mikið? Fókus.
Hvaða þremur persónum vildirðu bjóða í draumakvöldverð? Birni Jörundi, Sóla Hólm og Sveppa.
Ef þú gætir farið til baka í tímann, hvert færðirðu? Ég myndi vilja vera á staðnum og sjá þegar Kobe Bryant varð NBA meistari.
Þú varst valinn besti dómarinn í Bónus-deildinni í körfubolta 2025-2026. Hverju þakkarðu þau verðlaun og er eitthvað eitt sem þú leggur áherslu á að gera þegar þú ert með flautuna um hálsinn?
Það að vera körfuboltadómari er lífsstíll sem krefst mikillar vinnu og þjálfunar, innan vallar sem utan. Vilja alltaf bæta sig og læra af mistökunum. Stuðningur og skilningur fjölskyldunnar í gegnum öll árin er afar dýrmætur. Í leikjum er leikstjórnun mjög mikilvæg, vera með yfirsýn og halda fókus allan tímann.
Hver er eftirminnilegasti körfuboltaleikur sem þú hefur dæmt og af hverju?
Árið 2015 var ég valinn af FIBA til að dæma á Eurobasket í Riga í Lettlandi. Dæmdi þar fjóra leiki en fyrsti leikurinn var sá eftirminnanlegasti. Upplifunin að ganga inn á völlinn og heyra í yfir 10.000 stuðningsmönnum liðanna var ógleymanleg. Leikurinn var á milli Litháen og Úkraníu. Hörkuspennandi og lokatölur voru 69-68.
Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Höldum fókus sama á hverju gengur.







