Remy leiddi lið Keflvíkinga til sigurs á Val - úrslitaleikur á Hlíðarenda
Keflvíkingar jöfnuðu í einvíginu við Val í Blue höllinni í kvöld í 8-liða úrslitum Bónus-deildar karla í körfubolta. Lokatölur 88-81 og staðan 2-2.
Remy Martin lék sinn besta leik í vetur og skoraði 27 stig og leiddi góða frammistöðu heimamanna sem voru með forystu frá fyrstu mínútu til hinnar síðustu að undanskildu einu skipti sem Valsmenn náðu að jafna.
Keflavík leiddi með sex stigum eftir fyrsta leikhluta en Valsmenn voru aldrei langt undan. Staðan í hálfleik 47-39.
Leikurinn var áfram jafn og spennandi þangað til í fjórða leikhluta að heimamenn náðu mest 16 stiga forskoti í lokaleikhlutanum 74-58. Þeir misstu aðeins fókus og Valsmenn minnkuðu muninn í sex stig en nær komust þeir ekki. Sanngjarn sigur Keflvíkinga.
Remy dreif sína menn áfram og hefur verið vaxandi. Hann hefur ekki leikið jafn vel og hann gerði þegar hann var hér síðast en nú sýndi hann allar sínar bestu hliðar. Hilmar Pétursson átti líka einn sinn besta leik í vetur og skoraði 25 stig og svo var bekkurinn að skila sínu hjá Keflavík. Daníel Guðni, þjálfari sagði að liðsheildin skipti öllu máli í svona stórum og jöfnum leikjum. Ólafur Björn Gunnlaugsson lék góða vörn á Antonio Woods auk þess að skora fimm stig en Woods hefur verið besti maður Vals í seríunni.
Leikirnir hafa verið mjög jafnir og fátt sem bendir til annars en að fimmti leikurinn verði það líka. Valsmenn eru á heimavelli en Keflvíkingum hefur gengið vel á Hlíðarenda og því er von á fjörugum leik.
Keflavík-Valur 88-81 (28-22, 19-17, 16-15, 25-27)
Keflavík: Remy Martin 27, Mirza Bulic 18/16 fráköst/5 stoðsendingar, Egor Koulechov 11/4 fráköst, Hilmar Pétursson 11/4 fráköst/5 stoðsendingar, Jaka Brodnik 7/5 fráköst, Ólafur Björn Gunnlaugsson 5/4 fráköst/3 varin skot, Craig Edward Moller 5/11 fráköst, Halldór Garðar Hermannsson 4, Eyþór Lár Bárðarson 0, Frosti Sigurðarson 0, Jakob Máni Magnússon 0, Nikola Orelj 0.
Valur: Kristófer Acox 24/10 fráköst, Antonio Keyshawn Woods 19, Callum Reese Lawson 14/6 fráköst, Kári Jónsson 9/4 fráköst, Frank Aron Booker 9/5 fráköst, Igor Maric 3, Hjálmar Stefánsson 3/6 fráköst, Karl Kristján Sigurðarson 0, Orri Már Svavarsson 0, Lazar Nikolic 0/5 fráköst, Veigar Örn Svavarsson 0, Ástþór Atli Svalason 0.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Gunnlaugur Briem, Davíð Kristján Hreiðarsson
Áhorfendur: 1328








