Keflavíkurkonur í undanúrslit eftir sigur á KR
Keflvíkingar eru komnir í undanúrslit í Bónus-deild kvenna í körfubolta eftir frækilegan sigur í úrslitaleik gegn KR í Vestubænum í kvöld. Keishana Washingon fór fyrir Keflavíkurkonum með stórbrotinni frammistöðu þar sem hún skoraði 39 stig.
KR-ingar byrjuðu betur og leiddu með fjórum stigum eftir fyrsta leikhluta. Keflvíkingar tóku næsta leikhluta með þremur og staðan í hálfleik 46-45.
Áfram var jafnt með liðunum en bandarísku leikmenn liðanna, Washington og Molly Kaiser stýrðu báðar sínum liðum og háðu hálfgert einvígi.
Þegar tvær og hálf mínúta var til leiksloka munaði bara einu stigi á liðunum, 83-84 fyrir Keflavík. Washington skoraði síðustu sjö stig Keflavíkur og leiksins en KR var stigalaust þennan lokakafla og Vesturbæjarkonur þurftu að játa sig sigraðar. Lokatölur 83-91.
Washington var mögnuð með hraða sínum og frábærum leik, hún skoraði 39 stig, tók 7 fráköstu og gaf 7 stoðsendingar. Sofie Preetzmann kom mjög sterk af bekknum eins og hún gerði líka í fjórða leiknum, skoraði 11 stig og tók sex fráköst. Hin hávaxna Angelina Turmel var með tíu stig, Emelía Ósk skoraði níu en landsliðskonurnar Sara Rún, 6 stig og Thelma Dís, 4 stig, náðu sér ekki á strik í sókn en það kom ekki að sök.
Breiddin hjá Keflavík er mikil og það kom í ljós í þessu einvígi en liðið varð í 6. sæti í deildarkeppninni og náði sér aldrei almennilega á strik þar. Þær voru betri í einvíginu en KR en nú fer alvaran á hærra stig þegar í undanúrslitin er komið. Þar leika Haukar-Keflavík og Njarðvík fær Grindavík. Fyrsti leikurinn 19. apríl, næsti daginn eftir.
KR-Keflavík 83-91 (25-21, 21-24, 22-25, 15-21)
Keflavík: Keishana Washington 39/7 fráköst/7 stoðsendingar, Sofie Tryggedsson Preetzmann 11/6 fráköst/5 stoðsendingar, Angelina Turmel 10/5 fráköst, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 9, Sara Rún Hinriksdóttir 6/4 fráköst, Anna Ingunn Svansdóttir 5, Agnes María Svansdóttir 5/5 fráköst, Thelma Dís Ágústsdóttir 4, Anna Lára Vignisdóttir 2, Eva Kristín Karlsdóttir 0, Katla Rún Garðarsdóttir 0, Bríet Sif Hinriksdóttir 0.
KR: Molly Kaiser 30/5 fráköst/5 stoðsendingar, Jiselle Elizabeth Valentine Thomas 19/6 fráköst, Rebekka Rut Steingrímsdóttir 11/8 fráköst, Eve Braslis 9/9 fráköst/6 stoðsendingar, Kristrún Ríkey Ólafsdóttir 9/7 fráköst, Anna María Magnúsdóttir 3/4 fráköst, Hanna Þráinsdóttir 2, Lea Gunnarsdóttir 0, Perla Jóhannsdóttir 0, Arndís Rut Matthíasdóttir 0, Kristrún Edda Kjartansdóttir 0, Kaja Gunnarsdóttir 0.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Davíð Kristján Hreiðarsson, Jón Þór Eyþórsson
Áhorfendur: 343
Viðureign: 2-3



